Alvarleg staða í landbúnaði

Málsnúmer 2310087

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1195. fundur - 30.10.2023

Byggðarráð Húnaþings vestra lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu bænda og hugsanlegum áhrifum hennar á hinar dreifðari byggðir sem og matvælaframleiðslu í landinu. Miklar kostnaðarhækkanir og hátt vaxtastig undanfarin misseri hefur haft veruleg áhrif á rekstrarumhverfi flestra búgreina og nú er svo komið að fjölmargir bændur íhuga að bregða búi vegna stöðunnar.
Húnaþing vestra er landbúnaðarhérað og myndi fækkun í bændastétt hafa víðtæk afleidd áhrif í sveitarfélaginu. Ef stjórnvöldum er alvara með byggðastefnu sinni sem og yfirlýsingum um fæðuöryggi og mikilvægi innlendrar matvælaframleiðslu er nauðsynlegt að brugðist verði við með ákveðnum og skjótum hætti. Ef ekkert er að gert er hætta á mjög afdrifaríkum afleiðingum, ekki bara í stétt bænda heldur einnig hjá þeim fjölmörgu sem byggja afkomu sína að miklu leyti á þjónustu við landbúnað.
Byggðarráð bindur vonir við nýskipaðan starfshóp ráðuneytisstjóra vegna fjárhagsstöðu bænda og óskar eftir fundi með hópnum til að fara yfir meginsjónarmið í málinu.

Landbúnaðarráð - 204. fundur - 02.11.2023

Húnaþing vestra býr yfir þeirri miklu gæfu að vera gjöfult landbúnaðarhérað. Hér hefur landbúnaður byggst upp í sátt við land og fólk sem hefur skilað sér í því að héraðið er eitthvert grónasta hérað landsins og vel fallið til matvælaframleiðslu af ýmsu tagi. Þéttbýli og dreifbýli reiðir sig á hvert annað, ungir bændur sjá sér hag í að setjast hér að sem er ótvírætt gæðamerki á það landsvæði sem við búum í.
Miklar kostnaðarhækkanir og hátt vaxtastig undanfarin misseri hafa hins vegar haft veruleg áhrif á rekstrarumhverfi flestra búgreina og nú er svo komið að fjölmargir bændur íhuga að bregða búi vegna stöðunnar. Ekki hvað síst á það við um bændur sem hafa nýlega hafið rekstur og eru þar með, eðli málsins samkvæmt, skuldsettari en aðrir.
Stjórnvöld hafa undanfarin misseri farið fögrum orðum um hina nýkrýndu matvæla- og landbúnaðarstefnu ásamt því að hugtakinu fæðuöryggi er flaggað á tyllidögum. Nú verða orðum að fylgja efndir. Stefna í fæðu- og matvælaöryggisstefnum þarf að vera þannig útfærð að bændum sé raunverulega kleift að stunda matvælaframleiðslu.
Landbúnaðarráð skorar hér með á stjórnvöld að fylgja eftir eigin landbúnaðarstefnu og sjá til þess að ungir bændur, sem og aðrir bændur, geti skammlaust lifað af sínum búskap eins og almennt er álitið sjálfsagt hjá nágrannaþjóðum okkar.
Var efnið á síðunni hjálplegt?