Byggðarráð

1195. fundur 30. október 2023 kl. 14:00 - 15:06 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Friðrik Már Sigurðsson varaformaður
  • Magnús Magnússon formaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá

1.Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Lækjamótavegar af vegaskrá (að Sindrastöðum)

Málsnúmer 2310084Vakta málsnúmer

Um er að ræða veg að Sindrastöðum 2. Lagt fram til kynningar.

2.Ályktun haustfundar Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra

Málsnúmer 2310083Vakta málsnúmer

Byggðarráð þakkar Félagi eldri borgara góðar ábendingar um húsnæðismál.

3.Skýrsla um störf Flugklasans Air 66N maí-okt.2023

Málsnúmer 2310082Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

4.Störf undanþegin verkfallsheimild 2024

Málsnúmer 2310029Vakta málsnúmer

Lagður fram listi yfir störf undanþegin verkfallsheimild á árinu 2024 samkvæmt 5.-8. tl. 19. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og með síðari breytingum um kjarasamninga aðildarfélaga ASÍ. Stéttarfélög hafa fengið listann til umsagnar. Engar athugasemdir bárust. Byggðarráð samþykkir listann og felur sveitarstjóra að senda hann til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda.

5.Alvarleg staða í landbúnaði

Málsnúmer 2310087Vakta málsnúmer

Byggðarráð Húnaþings vestra lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu bænda og hugsanlegum áhrifum hennar á hinar dreifðari byggðir sem og matvælaframleiðslu í landinu. Miklar kostnaðarhækkanir og hátt vaxtastig undanfarin misseri hefur haft veruleg áhrif á rekstrarumhverfi flestra búgreina og nú er svo komið að fjölmargir bændur íhuga að bregða búi vegna stöðunnar.
Húnaþing vestra er landbúnaðarhérað og myndi fækkun í bændastétt hafa víðtæk afleidd áhrif í sveitarfélaginu. Ef stjórnvöldum er alvara með byggðastefnu sinni sem og yfirlýsingum um fæðuöryggi og mikilvægi innlendrar matvælaframleiðslu er nauðsynlegt að brugðist verði við með ákveðnum og skjótum hætti. Ef ekkert er að gert er hætta á mjög afdrifaríkum afleiðingum, ekki bara í stétt bænda heldur einnig hjá þeim fjölmörgu sem byggja afkomu sína að miklu leyti á þjónustu við landbúnað.
Byggðarráð bindur vonir við nýskipaðan starfshóp ráðuneytisstjóra vegna fjárhagsstöðu bænda og óskar eftir fundi með hópnum til að fara yfir meginsjónarmið í málinu.

6.Þátttaka og framlög sveitarfélaga til stafræns samstarfs 2024

Málsnúmer 2310071Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

7.Fundargerð 935. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 16. október 2023

Málsnúmer 2310081Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

8.Beiðni um umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um grunnskóla (kristinfræðikennsla), 47. mál. Umsagnarfrestur til 9. nóvember 2023.

Málsnúmer 2310085Vakta málsnúmer

Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.

Fundi slitið - kl. 15:06.

Var efnið á síðunni hjálplegt?