Þórðartröð 8, umsókn um breytingu á deiliskipulagi.

Málsnúmer 2404099

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisráð - 367. fundur - 02.05.2024

Sótt er um leyfi fyrir stækkun á byggingarreit við Þórðartröð 8 úr H1 í H2 í gildandi deiliskipulagi Kirkjuhvamms á Hvammstanga dags:09.07.2007/08.03.2012.

Í deiliskipulagi geta húsagerðir fyrir H1 verið allt að 160m², með hámarksfjölda hrossa 16-20.

En fyrir húsagerð H2 getur verið allt að 350m² að stærð, með hámarksfjölda hrossa 25-30.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna deiliskipulagsbreytinguna skv.2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grenndarkynna þarf fyrir eigendum að Þórðartröð 10, Jónströð 7 og Hallartröð 2.
Var efnið á síðunni hjálplegt?