Fræðsluráð - 246

Málsnúmer 2405003F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 382. fundur - 13.06.2024

Fundur haldinn 30. maí. Fundargerð í 7 liðum. Formaður kynnti.
Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • .1 2310070 Sameiginleg forvarnaáætlun á Norðurlandi vestra
    Fræðsluráð - 246 Sviðsstjóri fór yfir stöðu sameiginlegrar forvarnaáætlunar For-Nor sem er á lokametrunum. Einnig kynnt dæmi úr áætluninni.
  • .2 2310069 Fræðslustjóri að láni
    Fræðsluráð - 246 Sviðsstjóri kynnti vinnu vegna verkefnisins Fræðslustjóri að láni. Könnun hefur verið send á starfsfólk sveitarfélaganna um áherslur.
  • .3 2405032 Viðmið leikskólans Ásgarðs vegna námsleyfa.
    Fræðsluráð - 246 Lagðar fram til kynningar tillögur leikskólastjóra um viðmið Leikskólans Ásgarðs vegna námsleyfa. Fræðsluráð leggur til að breyta síðasta viðmiði leiskólans með þeim hætti að þeir sem þegar hafa hafið nám, eigi ekki á hættu að þurfa að gera hlé á námi sínu sæki um starfsmaður með lengri starfsaldur. Að öðru leyti eru ekki gerðar athugasemdir við þessi viðmið Leikskólans.
  • .4 2402050 Skóladagatal grunnskóla og tónlistarskóla 2024-2025
    Fræðsluráð - 246 Fræðsluráð samþykkir framlagt skóladagatal sem er sameiginlegt Grunnskóla Húnaþings vestra og Tónlistarskóla Húnaþings vestra.
  • .5 2402025 Umsókn í Sprotasjóð febrúar 2024
    Fræðsluráð - 246 Sviðsstjóri kynnti að umsókn í Spotasjóð um verkefni er varðar inngildingu í skólastarfi hafi verið hafnað.
  • .6 2401004 Helstu verkefni Fjölskyldusviðs frá síðasta fundi 2024
    Fræðsluráð - 246 Sviðsstjóri fór yfir helstu verkefni fjölskyldusviðs.
  • .7 2310067 Fundargerðir farsældarteymis
    Fræðsluráð - 246 Lagðar fram til kynningar fundargerðir farsældarteymis frá síðasta fundi.
Var efnið á síðunni hjálplegt?