Byggðarráð - 1222

Málsnúmer 2408005F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 383. fundur - 12.09.2024

Fundur haldinn 9. september. Fundargerð í 10 liðum. Formaður kynnti.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1222 Auglýst var eftir tillögum að forgangsverkefnum með auglýsingu á heimasíðu sveitarfélagsins. Engar tillögur bárust. Byggðarráð samþykkir óbreytt forgangsverkefni frá fyrra ári. Þau eru Vatnsnes, Borðeyri, Reykir í Hrútafirði, Kolugljúfur og stígakerfi milli Laugarbakka, Hvammstanga og Kirkjuhvamms.
  • Byggðarráð - 1222 Starf sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs var auglýst laust til umsókar með umsóknarfresti til 15. júlí 2024. Tekin voru viðtöl við þrjá stigahæstu umsækjendurna og eftir seinna viðtal var þeim umsækjanda sem metinn var hæfastur boðið starfið. Viðkomandi þáði starfið ekki og dró sig til baka úr ferlinu. Aðrir umsækjendur sem boðaðir voru til viðtals þóttu ekki mæta hæfniskröfum á sambærilegan hátt og sá umsækjandi sem boðið var starfið. Byggðarráð samþykkir að hætta við ráðningu og auglýsa starfið aftur án breytinga. Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1222 Lagt fram erindi frá Lögreglustjóranum á Norðurlandi vestra um uppsetningu öryggismyndavéla í umdæminu. Er óskað eftir tilnefningu í starfshóp vegna verkefnisins. Byggðarráð tilnefnir Unni Valborgu Hilmarsdóttur, sveitarstjóra í starfshópinn. Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1222 Lagt fram minnisblað sveitarstjóra þar sem lögð er fram tillaga að auknu starfshlutfalli slökkviliðsstjóra, úr 50% í 75% sem taki gildi frá og með 1. október 2024. Byggðarráð samþykkir breytinguna enda rúmast hún innan fjárhagsáætlunar 2024. Núverandi slökkviliðsstjóri var ráðinn til eins árs í september 2023 og er ráðningartími hans því að renna út. Sveitarstjóra er falið að auglýsa starfið laust til umsóknar. Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1222 Lagt fram minnisblað sveitarstjóra varðandi ráðstöfun fjármuna til kynningarmála sem gert var ráð fyrir á fjárhagsáætlun ársins 2024. Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu sem felst í framleiðslu myndbanda til birtingar á samfélagsmiðlum sem vekja athygli á Húnaþingi vestra sem ákjósanlegum búsetukosti. Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1222 Lagt fram erindi frá Húnvetningafélagi Reykjavíkur þar sem fram kemur að félagið hyggist beita sér fyrir úrbótum í bruna- og öryggismálum Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum í Hrútafirði. Í erindinu kemur fram að aðalfundur félagsins hafi heimilað stjórn þess að verja allt að 10 milljónum króna til verkefnisins. Félagið kom að stofnun safnsins og hefur síðan látið sig málefni þess varða. Byggðarráð þakkar félaginu sýndan hlýhug í garð safnsins og rausnarlega gjöf. Bókun fundar Sveitarstjórn tekur undir þakkir til Húnvetningafélagsins í Reykjavík, en gjöfin sýnir mikinn hlýhug í garð Byggðasafnsins á Reykjum. Gjöfin mun sannarlega skipta sköpum við úrbætur á bruna- og öryggismálum safnsins.
  • Byggðarráð - 1222 Lögð fram drög að viðverustefnu Húnaþings vestra. Byggðarráð samþykkir að drögin, með áorðnum breytingum, verði sett í samráð meðal starfsmanna sveitarfélagsins. Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1222 Lögð fram til kynningar.
  • Byggðarráð - 1222 Lögð fram til kynningar.
  • .10 2409022 Starfsmannamál
    Byggðarráð - 1222 Fært í trúnaðarbók.
Var efnið á síðunni hjálplegt?