Sveitarstjórn

383. fundur 12. september 2024 kl. 15:38 - 17:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Þorleifur Karl Eggertsson oddviti
  • Magnús Magnússon varaoddviti
  • Sigríður Ólafsdóttir aðalmaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Borghildur Haraldsdóttir varamaður
    Aðalmaður: Ingimar Sigurðsson
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
Fundur haldinn 9. september. Fundargerð í 10 liðum. Formaður kynnti.

1.Byggðarráð - 1222

Málsnúmer 2408005FVakta málsnúmer

Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1222 Auglýst var eftir tillögum að forgangsverkefnum með auglýsingu á heimasíðu sveitarfélagsins. Engar tillögur bárust. Byggðarráð samþykkir óbreytt forgangsverkefni frá fyrra ári. Þau eru Vatnsnes, Borðeyri, Reykir í Hrútafirði, Kolugljúfur og stígakerfi milli Laugarbakka, Hvammstanga og Kirkjuhvamms.
  • Byggðarráð - 1222 Starf sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs var auglýst laust til umsókar með umsóknarfresti til 15. júlí 2024. Tekin voru viðtöl við þrjá stigahæstu umsækjendurna og eftir seinna viðtal var þeim umsækjanda sem metinn var hæfastur boðið starfið. Viðkomandi þáði starfið ekki og dró sig til baka úr ferlinu. Aðrir umsækjendur sem boðaðir voru til viðtals þóttu ekki mæta hæfniskröfum á sambærilegan hátt og sá umsækjandi sem boðið var starfið. Byggðarráð samþykkir að hætta við ráðningu og auglýsa starfið aftur án breytinga. Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1222 Lagt fram erindi frá Lögreglustjóranum á Norðurlandi vestra um uppsetningu öryggismyndavéla í umdæminu. Er óskað eftir tilnefningu í starfshóp vegna verkefnisins. Byggðarráð tilnefnir Unni Valborgu Hilmarsdóttur, sveitarstjóra í starfshópinn. Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1222 Lagt fram minnisblað sveitarstjóra þar sem lögð er fram tillaga að auknu starfshlutfalli slökkviliðsstjóra, úr 50% í 75% sem taki gildi frá og með 1. október 2024. Byggðarráð samþykkir breytinguna enda rúmast hún innan fjárhagsáætlunar 2024. Núverandi slökkviliðsstjóri var ráðinn til eins árs í september 2023 og er ráðningartími hans því að renna út. Sveitarstjóra er falið að auglýsa starfið laust til umsóknar. Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1222 Lagt fram minnisblað sveitarstjóra varðandi ráðstöfun fjármuna til kynningarmála sem gert var ráð fyrir á fjárhagsáætlun ársins 2024. Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu sem felst í framleiðslu myndbanda til birtingar á samfélagsmiðlum sem vekja athygli á Húnaþingi vestra sem ákjósanlegum búsetukosti. Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1222 Lagt fram erindi frá Húnvetningafélagi Reykjavíkur þar sem fram kemur að félagið hyggist beita sér fyrir úrbótum í bruna- og öryggismálum Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum í Hrútafirði. Í erindinu kemur fram að aðalfundur félagsins hafi heimilað stjórn þess að verja allt að 10 milljónum króna til verkefnisins. Félagið kom að stofnun safnsins og hefur síðan látið sig málefni þess varða. Byggðarráð þakkar félaginu sýndan hlýhug í garð safnsins og rausnarlega gjöf. Bókun fundar Sveitarstjórn tekur undir þakkir til Húnvetningafélagsins í Reykjavík, en gjöfin sýnir mikinn hlýhug í garð Byggðasafnsins á Reykjum. Gjöfin mun sannarlega skipta sköpum við úrbætur á bruna- og öryggismálum safnsins.
  • Byggðarráð - 1222 Lögð fram drög að viðverustefnu Húnaþings vestra. Byggðarráð samþykkir að drögin, með áorðnum breytingum, verði sett í samráð meðal starfsmanna sveitarfélagsins. Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1222 Lögð fram til kynningar.
  • Byggðarráð - 1222 Lögð fram til kynningar.
  • 1.10 2409022 Starfsmannamál
    Byggðarráð - 1222 Fært í trúnaðarbók.
Fundur haldinn 12. september. Fundargerð í 3 liðum. Formaður kynnti.

2.Byggðarráð - 1223

Málsnúmer 2409001FVakta málsnúmer

Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1223 Farið var yfir helstu forsendur gjaldskráa fyrir árið 2025.
  • Byggðarráð - 1223 Lögð fram eftirfarandi tillaga:
    "Fjárhæð frístundakorts verði kr. 25.000 árið 2025 fyrir börn frá fæðingu að 18. aldursári."

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.
    Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1223 Lagðar fram til kynningar starfsáætlanir forstöðumanna fyrir árið 2025.

    Byggðarráð þakkar forstöðumönnum fyrir greinargóðar áætlanir sem sýna glöggt faglegan metnað fyrir stofnunum þeirra.
Fundur haldinn 28. ágúst. Fundargerð í 8 liðum. Oddviti kynnti.

3.Félagsmálaráð - 256

Málsnúmer 2408003FVakta málsnúmer

Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 3.1 2404072 Athugun á upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk á vefsíðum sveitarfélaga
    Félagsmálaráð - 256 Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti breytingar á upplýsingum á heimasíðu Húnaþings vestra í kjölfar athugunar Gæða- og eftirlitsstofnunar.
  • 3.2 2310067 Fundargerðir farsældarteymis
    Félagsmálaráð - 256 Fundargerðir farsældarteymis lagðar fram til kynningar.
  • 3.3 2404097 frumkvæðisathugun á þjónustu í búsetuúrræðum fatlaðs fólks
    Félagsmálaráð - 256 Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti frumkvæðisathugun á þjónustu í búsetuúrræðum fyrir fatlað fólk. Málið er unnið á fagráðsfundum um málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra.
  • 3.4 2408011 Úthlutun íbúðar 108 í Nestúni
    Félagsmálaráð - 256 Einn íbúi hefur óskað eftir íbúð 108 og er henni úthlutað til Margrétar Guðmundsdóttur.
  • 3.5 2408031 Úthlutun íbúðar 101 í Nestúni
    Félagsmálaráð - 256 Ekki liggja fyrir óskir íbúa um flutning innanhúss og því er íbúð 101 úthlutað til Hólmfríðar Sigurðardóttur.
  • 3.6 2403029 Frumkvæðisathugun á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu
    Félagsmálaráð - 256 Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnt frumkvæðisathugun Gæða- og eftirlitsstofnunar á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu. Nýjar reglur Húnaþings vestra um stoð- og stuðningsþjónustu eru frá 2023 og standast þau viðmið sem athugunin beinist að.
  • 3.7 2311025 Bjartur lífstíll
    Félagsmálaráð - 256 Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti upplýsingar á heimasíðu um hreyfiúrræði fyrir eldri borgara.
  • 3.8 2310068 Gott að eldast
    Félagsmálaráð - 256 Henrike Wappler yfirfélagsráðgjafi fór yfir stöðu verkefnisins Gott að eldast. Drög að samningi milli HVE og Húnaþings vestra liggja fyrir og stefnt er að undirritun fljótlega.

4.Ákvörðun um breytingu á tímasetningu hefðbundins sveitarstjórnarfundar októbermánaðar

Málsnúmer 2409023Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn samþykkir að næsti reglubundni fundur sveitarstjórnar fari fram fimmtudaginn 17. október nk., en fjármálaráðstefna sveitarfélaganna mun fara fram á hefðbundnum fundartíma sveitarstjórnar í október.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

5.Skýrsla sveitarstjóra

Málsnúmer 2311018Vakta málsnúmer

Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá síðasta reglulega sveitarstjórnarfundi. Skýrslan var flutt munnlega og til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?