Fræðsluráð - 248

Málsnúmer 2409006F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 384. fundur - 17.10.2024

Formaður fræðsluráðs kynnti fundargerðina.
Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • .1 2409060 Tónlistarskóli Húnaþings vestra - starfið 2024-2025
    Fræðsluráð - 248 Skólastjóri tónlistarskóla fór yfir starfsemi tónlistarskólans og veturinn framundan. Nemendafjöldi er 82, þar af 8 nemendur í forskólahóp í leikskóla. Tölverðar breytingar eru í starfsmannahópnum en starfsmenn eru 8. Helstu breytingar eru hóptímar þar sem unnið er með samspil í hljómsveit. Aukið hefur verið við hljóðfærasafn skólans. Einnig var greint frá að ný aðalnámskrá tónlistarskóla er í vinnslu og skólinn fylgist með þeirri vinnu.
  • .2 2409059 Leikskólinn Ásgarður - starfið 2024-2025
    Fræðsluráð - 248 Skólastjóri leikskóla boðaði forföll og dagskrárlið er því frestað.
  • .3 2409061 Menntastefna Húnaþings vestra
    Fræðsluráð - 248 Skólastjórnendur grunnskóla fóru yfir helstu atriði af sameiginlegum starfsdegi grunn- leik- og tónlistarskóla þar sem menntastefna var rýnd. Þar var unnið með hugmyndir eins og umhverfisdaga, útikennslusvæði og bókadag. Einnig var ákveðið að í stað þess að gera sérstaka framkvæmdaáætlun verði hún samþætt umbótaáætlunum skólanna. Verið er að undirbúa markmið í heilsueflandi skóla sem tengjast menntastefnunni beint.
  • .4 2409058 Grunnskóli Húnaþings vestra - starfið 2024-2025
    Fræðsluráð - 248 Skólastjórnendur grunnskóla fór yfir starfsemi grunnskólans og veturinn framundan. Nemendafjöldi er 123 og starfsmenn er um 40. Færri stuðningsfulltrúar eru við störf en fleiri kennarastöður til að efla stoðþjónustu.
    Skólastjórnendur sögðu frá valgreinadegi, menntabúðum, árshátíð o.fl. Skólinn tekur þátt í stóru Erasmus verkefni er varðar námsefni um loftslagsmál. Fjórir nemendur taka þátt, tveir starfsmenn úr skólanum og tveir starfsmenn frá Selasetri Íslands. Pönnuvöllur er kominn á lóðina og von er á klifurvegg innanhúss sem er gjöf frá Kvenfélaginu Björk. Símalaus skóli gengur vel og hefur mjög góð áhrif á samskipti og staðblæ í skólanum.
  • .5 2409057 Skólabúðirnar að Reykjum - starfið 2024-2025
    Fræðsluráð - 248 Forstöðumaður Skólabúða á Reykjum fór yfir starfsemi skólabúðanna og veturinn framundan. Nemendafjöldi er um 3600 á ári, og starfsmenn eru 9. Starfið er með svipuðu sniði og síðasta ár og ánægja hjá kennurum og nemendum sem sækja starfið.
  • .6 2310067 Fundargerðir farsældarteymis
    Fræðsluráð - 248 Fundargerðir farsældarteymis lagðar fram til kynningar.
  • .7 2401004 Helstu verkefni Fjölskyldusviðs frá síðasta fundi 2024
    Fræðsluráð - 248 Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir helstu verkefni á fjölskyldusviði frá síðasta fundi. Þar má nefna bækling/samantekt um frístundastarf í Húnaþingi vestra, samfélagsmiðstöð, íbúafund og fundi með nemendum, skýrslur vegna styrkja sem veittir voru vegna Krakkasveiflunnar, Klúbbastarf á skólatíma, þjónustukönnun og starfsmannakönnun Íþróttamiðstöðvar, endurmenntunaráætlun og starfsáætlun. Mál til afgreiðslu og í vinnslu voru 77 og einstaklingsmál 77.

Var efnið á síðunni hjálplegt?