.1
2409085
Vetrarveiði á ref veturinn 2024-2025
Landbúnaðarráð - 214
Auglýst var eftir aðilum til vetrarveiði á ref með umsóknarfresti til 1. nóvember sl.
Eftirfarandi umsóknir bárust:
Sigfús Heiðar Árdal Jóhannsson, vegna veiða í Víðidal.
Bjarni Kristmundsson, vegna veiða í austanverðum Hrútafirði.
Elmar Baldursson, vegna veiða á Vatnsnesi.
Þorbergur Guðmundsson, vegna veiða á Miðfjarðasvæði.
Landbúnaðarráð felur sveitarstjóra að gera samninga við umsóknaraðila, þ.e.:
Sigfús Heiðar Árdal Jóhannsson, vegna veiða í Víðidal.
Bjarni Kristmundsson, vegna veiða í austanverðum Hrútafirði.
Elmar Baldursson, vegna veiða á Vatnsnesi.
Þorbergur Guðmundsson, vegna veiða á Miðfjarðasvæði.
Landbúnaðarráð felur sveitarstjóra jafnframt að auglýsa aftur þau svæði sem engar umsóknir bárust um.
Bókun fundar
Elín Lilja vék af fundi kl. 15:25.
Afgreiðsla landbúnaðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.
Elín Lilja kom aftur til fundar kl. 15:27.
.2
2409086
Uppgjör sumarvinnu fjallskiladeilda
Landbúnaðarráð - 214
Lagt fram til kynningar uppgjör vegna styrkvega og heiðagirðinga 2024.
.3
2409087
Uppgjör refa og minkaveiði 2024
Landbúnaðarráð - 214
Lagðar fram upplýsingar um refa- og minkaveiði frá 1. september 2023 til 31. ágúst 2024.
Heildarkostnaður vegna refa- og minkaveiði á þessu tímabili er alls kr. 8.461.240. Unnin grendýr eru 83, yrðlingar 188 og hlaupadýr 146.
.4
2410045
Vörsluskylda búfjár - ályktun frá Skógræktarfélagi Íslands
Landbúnaðarráð - 214
Ályktun lögð fram til kynningar.
.5
2410048
Starfsáætlun landbúnaðarráðs 2025
Landbúnaðarráð - 214
Lögð fram drög að starfsáætlun landbúnaðarráðs fyrir árið 2025, þar sem helstu verkefni ráðsins eru tilgreind.
Landbúnaðarráð samþykkir starfsáætlun landbúnaðarráðs með áorðnum breytingum fyrir árið 2025.