Sveitarstjórn

385. fundur 14. nóvember 2024 kl. 15:00 - 17:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Þorleifur Karl Eggertsson oddviti
  • Magnús Magnússon varaoddviti
  • Birkir Snær Gunnlaugsson varamaður
    Aðalmaður: Sigríður Ólafsdóttir
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Ingimar Sigurðsson aðalmaður
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
Formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.

1.Byggðarráð - 1230

Málsnúmer 2410006FVakta málsnúmer

Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.

2.Byggðarráð - 1231

Málsnúmer 2410012FVakta málsnúmer

Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1231 Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs leggja fram tillögu að viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun ársins 2024 að upphæð kr. 0.

    Lögð er til eftirfarandi breyting á fjárhagsáætlun ársins 2024:

    00 - Útsvar
    Álagning kr. -13.000.000

    01 - Jöfnunarsjóður
    Framlög kr. -35.259.000

    02 - Félagsþjónusta
    Seld þjónusta kr. 2.100.628
    Laun og launatengd gjöld kr. -2.982.592
    Aðkeypt þjónusta kr. 1.175.000
    Húsaleigubætur kr. -1.002.816
    Málefni fatlaðs fólks kr. 44.955.000
    Tækjakaup kr. 105.000

    04 - Fræðslu-og uppeldismál
    Tekjur kr. 3.400.000
    Laun og launatengd gjöld kr. -16.618.958
    Aðkeypt þjónusta kr. 8.050.000
    Minniháttar tæki kr. 2.200.000

    05 - Menningarmál
    Minniháttar tæki kr. 551.000

    06 - Æskulýðs-og íþróttamál
    Laun og launatengd gjöld kr. -1.725.523
    Minniháttar tæki kr. 100.000

    07 - Brunamál og almannavarnir
    Minniháttar tæki kr. 3.305.000

    09 - Skipulagsmál
    Minniháttar tæki kr. 70.000

    10 - Umferðar-og samgöngumál
    Aðkeypt þjónusta kr. 17.220.000

    11 - Umhverfismál
    Laun og launatengd gjöld kr. -3.420.770

    13 - Atvinnumál
    Aðkeypt þjónusta kr. 203.000

    21 - Sameiginlegur kostnaður
    Laun og launatengd gjöld kr. -3.129.389
    Tekjur kr. -2.210.765
    Aðkeypt þjónusta kr. 3.180.000
    Minniháttar tæki kr. 3.650.000
    Önnur vörukaup kr. 500.000

    31 - Eignasjóður
    Aðkeypt þjónusta kr. 950.000
    Minniháttar tæki kr. 400.000

    43 - Vatnsveita
    Vörukaup kr. 2.000.000
    Aðkeypt þjónusta kr. 3.500.000

    57 - Félagslegar íbúðir
    Húsaleiga kr. 2.360.000

    82 - Reykjaeignir
    Viðhald fasteigna kr. 7.500.000

    2190 - Ófyrirséð kr. -28.124.815

    Kostnaður vegna málefna fatlaðs fólks hefur verið íþyngjandi fyrir rekstur sveitarfélagsins það sem af er ári.

    Lífskjarasamningar hafa haft þau áhrif að almennt verða launahækkanir ársins lægri en upphaflega var gert ráð fyrir með það að markmiði að ná niður vöxtum og verðbólgu í landinu. Í endurskoðaðri launaáætlun er gert ráð fyrir að þau stéttarfélög sem enn eiga ósamið við Samband íslenskra sveitarfélaga, semji á sömu forsendum og þeir kjarasamningar sem þegar hafa verið undirritaðir. Lífskjarasamningarnir hafa m.a. haft þau áhrif að frá og með haustönn greiða foreldrar barna í grunnskóla ekki fyrir skólamáltíðir. Í viðauka þessum lækka tekjur grunnskólans um 12,2 milljónir króna vegna þessa.

    Aðkeypt þjónusta ársins hækkar nokkuð, m.a. vegna ráðningarferla og nauðsynlegra endurbóta við stofnanir sveitarfélagsins m.a. vegna öryggis-og aðgangsmála.

    Tjón varð á loftpressu á slökkvistöð sem nauðsynlegt er að endurnýja.

    Langvarandi skerðing á viðhaldi gatna leiddi til viðhaldsframkvæmda sem ekki var séð fyrir í upphafi árs, auk þess sem kostnaður vegna rofs á vegi niður við höfn er um 5 milljónir króna. Jafnframt fer snjómokstur verulega fram úr áætlun, m.a. vegna hærri reikninga frá Vegagerðinni vegna helmingamoksturs auk þess sem kostnaður vegna moksturs gangstétta var vanmetinn í upphaflegri fjárhagsáætlun.

    Óvæntar bilanir hafa orðið hjá Vatnsveitunni sem skýra ástæðu viðauka þessa, en leki kom m.a. upp í lögnum frá Mjóadal og Grákollu.

    Óvænt viðhald hefur komið upp hjá Reykjaeignum.

    Auknum útgjöldum vegna framlagðs viðauka er mætt með auknum tekjum, en bæði útsvar og framlög Jöfnunarsjóðsins verða hærri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins. Jafnframt er gengið á ófyrirséðan kostnað sem upphaflega var áætlaður 30 milljónir króna fyrir árið 2024.

    Samhliða framlagningu viðauka er lagt fram málaflokkayfirlit sem sýnir áhrif viðaukans á einstaka málaflokka.

    Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
  • Byggðarráð - 1231 Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs leggja fram tillögu að viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun ársins 2024 að upphæð kr. 14.500.000.

    Lögð er til eftirfarandi breyting á fjárhagsáætlun ársins 2024:

    Eignasjóður
    Slökkvibifreiðar kr. 12.000.000

    Félagslegar íbúðir
    Endurbætun íbúða Nestúni kr. 2.500.000

    Hækkun eignfærðrar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár.

    Nauðsynlegt er að endurnýja bílaflota Brunavarna Húnaþings vestra. Fjárfesta þarf í tveimur bílum en á móti verða tveir bíla seldir, en með þessum breytingum verður viðbragð slökkviliðsins bætt til muna og þar með öryggi íbúa sveitarfélagsins. Beiðni slökkviliðstjóra var samþykkt á 1224. fundi byggðarráðs og sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála-og stjórnsýslusviðs var á sama fundi falið að undirbúa gerð viðauka.

    Framkvæmdir í Nestúni voru umfangsmeiri en upphaflega var búist við.

    Samhliða framlagningu viðauka er lagt fram málaflokkayfirlit sem sýnir áhrif viðaukans á einstaka málaflokka.

    Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
  • Byggðarráð - 1231 Byggðarráð samþykkir framlögð drög og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
  • Byggðarráð - 1231 Á fjárhagsáætlun ársins 2024 er gert ráð fyrir kr. 200.000 í styrki til leikfélaga, deild 0581. Byggðarráð samþykkir veitingu styrks í samræmi við það, að fjárhæð kr. 200.000, til Leikflokks Húnaþings vestra. Bókun fundar Þorleifur Karl vék af fundi kl. 15:16 og Magnús Magnússon varaoddviti tók við fundarstjórn.
    Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.
    Þorleifur Karl kom aftur til fundar kl. 15:18 og tók við fundarstjórn að nýju.
  • Byggðarráð - 1231 Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
  • 2.6 2410061 Mannauðsstefna
    Byggðarráð - 1231 Byggðarráð samþykkir að drögin verði sett í samráð meðal starfsmanna sveitarfélagsins.
  • Byggðarráð - 1231 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Samþykkt að senda áskorun fulltrúa kennara og skólastjórnenda á Norðurlandi vestra til kynningar í fræðsluráði.
  • Byggðarráð - 1231 Byggðarráð samþykkir veitingu afsláttar vegna viðburða í samfélagsþágu í samræmi við gjaldskrá Félagsheimilisins Hvammstanga. Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1231 Byggðarráð samþykkir framlengingu leigusamnings vegna íbúðar að Garðavegi 20 nh. til 6 mánaða frá 1. desember 2024 til 31. maí 2025.
  • Byggðarráð - 1231 Ekki er hægt að verða við styrkbeiðninni.
  • Byggðarráð - 1231 Hlutur Húnaþings vestra í ágóðahlutagreiðslu er kr. 476.500.
  • Byggðarráð - 1231 Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.
  • Byggðarráð - 1231 Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.
  • Byggðarráð - 1231 Lögð fram til kynninga.
  • Byggðarráð - 1231 Lögð fram til kynningar.
  • Byggðarráð - 1231 Lögð fram til kynningar.
  • Byggðarráð - 1231 Lögð fram til kynningar.
  • Byggðarráð - 1231 Lögð fram til kynningar.
Formaður fræðsluráðs kynnti fundargerð.

3.Fræðsluráð - 249

Málsnúmer 2410010FVakta málsnúmer

Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 3.1 2410025 Rekstrarúttekt leikskóla og grunnskóla
    Fræðsluráð - 249 Lagt fram minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs um rekstrarúttekt á grunnskóla og leikskóla. Tilboð barst frá þremur aðilum og fræðsluráð leggur til við sveitarstjórn að tilboði lægstbjóðanda, Ásgarðs skólaþjónustu, verði tekið. Tilboðið uppfyllir öll þau markmið sem úttektinni er ætlað að ná. Bókun fundar Afgreiðsla fræðsluráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 3.2 2409083 Starfsáætlun fjölskyldusviðs 2025
    Fræðsluráð - 249 Lögð fram til kynningar.
  • 3.3 2410051 Starfsáætlun leikskóla 2025
    Fræðsluráð - 249 Lögð fram til kynningar.
  • 3.4 2410052 Starfsáætlun grunnskóla 2025
    Fræðsluráð - 249 Lögð fram til kynningar.
  • 3.5 2410053 Starfsáætlun tónlistarskóla 2025
    Fræðsluráð - 249 Lögð fram til kynningar.
  • 3.6 2410054 Starfsáætlun íþróttamiðstöðvar og Órion 2025
    Fræðsluráð - 249 Lagðar fram til kynningar.
  • 3.7 2401004 Helstu verkefni fjölskyldusviðs frá síðasta fundi 2024
    Fræðsluráð - 249 Í október 2024 voru 77 mál til afgreiðslu og/eða vinnslu hjá fjölskyldusviði samkvæmt verkefnaskrá. Einstaklingsmál voru 47.

    Helstu verkefni voru stytting vinnuviku, stefna og aðgerðaráætlun um vellíðan án tóbaks, áfengis og annarra vímuefna, svæðisbundin farsældarráð, reglur um stuðnings- og stoðþjónustu, reglur um akstursþjónustu, gott að eldast, farsæld barna, félagsþjónusta, undirbúningur samfélagsmiðstöðvar, barnavernd, undirbúningur samantektar um frístundastarf, skýrsla um krakkasveifluna, fræðslustjóri að láni o.fl.

    Sviðsstjóri sagði einnig frá verkefninu Öruggara Norðurland vestra.
Oddviti kynnti fundargerð.

4.Félagsmálaráð - 258

Málsnúmer 2410009FVakta málsnúmer

Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Félagsmálaráð - 258 Lögð fram drög að reglum um akstursþjónustu fatlaðs fólks og drög að gjaldskrá fyrir akstursþjónustu. Félagsmálaráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til sveitarstjórnar.
  • Félagsmálaráð - 258 Í október 2024 voru 77 mál til afgreiðslu og/eða vinnslu hjá fjölskyldusviði samkvæmt verkefnaskrá. Einstaklingsmál voru 47.

    Helstu verkefni voru stytting vinnuviku, stefna og aðgerðaráætlun um vellíðan án tóbaks, áfengis og annarra vímuefna, svæðisbundin farsældarráð, reglur um stuðnings- og stoðþjónustu, reglur um akstursþjónustu, gott að eldast, farsæld barna, undirbúningur samfélagsmiðstöðvar, barnavernd, undirbúningur samantektar um frístundastarf, skýrsla um krakkasvefluna, fræðslustjóri að láni o.fl.
Oddviti kynnti fundargerð.

5.Landbúnaðarráð - 214

Málsnúmer 2410011FVakta málsnúmer

Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 5.1 2409085 Vetrarveiði á ref veturinn 2024-2025
    Landbúnaðarráð - 214 Auglýst var eftir aðilum til vetrarveiði á ref með umsóknarfresti til 1. nóvember sl.
    Eftirfarandi umsóknir bárust:
    Sigfús Heiðar Árdal Jóhannsson, vegna veiða í Víðidal.
    Bjarni Kristmundsson, vegna veiða í austanverðum Hrútafirði.
    Elmar Baldursson, vegna veiða á Vatnsnesi.
    Þorbergur Guðmundsson, vegna veiða á Miðfjarðasvæði.
    Landbúnaðarráð felur sveitarstjóra að gera samninga við umsóknaraðila, þ.e.:
    Sigfús Heiðar Árdal Jóhannsson, vegna veiða í Víðidal.
    Bjarni Kristmundsson, vegna veiða í austanverðum Hrútafirði.
    Elmar Baldursson, vegna veiða á Vatnsnesi.
    Þorbergur Guðmundsson, vegna veiða á Miðfjarðasvæði.
    Landbúnaðarráð felur sveitarstjóra jafnframt að auglýsa aftur þau svæði sem engar umsóknir bárust um.
    Bókun fundar Elín Lilja vék af fundi kl. 15:25.
    Afgreiðsla landbúnaðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.
    Elín Lilja kom aftur til fundar kl. 15:27.
  • 5.2 2409086 Uppgjör sumarvinnu fjallskiladeilda
    Landbúnaðarráð - 214 Lagt fram til kynningar uppgjör vegna styrkvega og heiðagirðinga 2024.

  • 5.3 2409087 Uppgjör refa og minkaveiði 2024
    Landbúnaðarráð - 214 Lagðar fram upplýsingar um refa- og minkaveiði frá 1. september 2023 til 31. ágúst 2024.
    Heildarkostnaður vegna refa- og minkaveiði á þessu tímabili er alls kr. 8.461.240. Unnin grendýr eru 83, yrðlingar 188 og hlaupadýr 146.
  • 5.4 2410045 Vörsluskylda búfjár - ályktun frá Skógræktarfélagi Íslands
    Landbúnaðarráð - 214 Ályktun lögð fram til kynningar.

  • 5.5 2410048 Starfsáætlun landbúnaðarráðs 2025
    Landbúnaðarráð - 214 Lögð fram drög að starfsáætlun landbúnaðarráðs fyrir árið 2025, þar sem helstu verkefni ráðsins eru tilgreind.

    Landbúnaðarráð samþykkir starfsáætlun landbúnaðarráðs með áorðnum breytingum fyrir árið 2025.
Formaður skipulags- og umhverfisráðs kynnti fundargerð.

6.Skipulags- og umhverfisráð - 371

Málsnúmer 2411001FVakta málsnúmer

Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 371 Skipulags- og umhverfisráð vill leggja áherslu á mikilvægi þess að vernda Snjófjöll og Tröllakirkju á Holtavörðuheiði. Svæðið er vinsælt göngu- og útivistarsvæði og áberandi í landslagi. Þar sem ummerki mannsins eru lítil sem engin á þessum stað, er svæðið afar viðkvæmt fyrir breytingum. Holtavörðuheiði býr að háu verndarákvæði, og Snjófjöllin hafa mikið útivistargildi, sem gerir það að verkum að sérstaka varúð þarf að sýna við allar framkvæmdir á svæðinu.

    Nefndin kallar eftir því að í öllum framkvæmdum á svæðinu verði lögð áhersla á vandaðan frágang og umhverfisvernd þannig að ásýnd og náttúrufegurð haldist að mestu óbreytt. Einnig skal kappkostað að mannvirki og sýnileg ummerki verði í lágmarki, með það að markmiði að tryggja náttúrulegan heildarsvip svæðisins til framtíðar.

    Við þetta telur nefndin að bæði verði gætt að náttúruverndarsjónarmiðum og stuðlað að því að útivistargildi svæðisins haldist og verði ákjósanlegt fyrir komandi kynslóðir.

    Þrátt fyrir möguleg neikvæð áhrif telur nefndin að töluverð jákvæð áhrif skapist fyrir samfélagið og atvinnuþróun vegna bættrar afhendingar orku og aukins afhendingaröryggis.

    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemdir við umhverfismatsskýrslu Holtavörðuheiðalínu 1.

    Bókun fundar Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 371 Skipulags- og umhverfsráð leggur til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemd við skipulagslýsingu á endurskoðuðun aðalskipulagis Húnabyggðar.

    Bókun fundar Dagskráliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 371 Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðar og lóðin fái staðfangið Efri-Þverá IA með fyrirvara á undirritunum eiganda á merkjalýsingu. Bókun fundar Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 371 Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðar og lóðin fái staðfangið Borðeyrarbær II. Bókun fundar Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 371 Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja leiðréttingu lóða með fyrirvara á undirritunum eiganda á merkjalýsingu. Bókun fundar Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 371 Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytta afmörkun lóðar með fyrirvara á undirritunum eiganda á merkjalýsingu. Bókun fundar Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 371 Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi hnitsetningu með fyrirvara á undirritunum eiganda á merkjalýsingu. Bókun fundar Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
Oddviti kynnti fundargerð.

7.Öldungaráð - 10

Málsnúmer 2410005FVakta málsnúmer

Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 7.1 2310068 Gott að eldast
    Öldungaráð - 10 Henrike Wappler og Kristín Eggertsdóttir fóru yfir stöðu verkefnisins Gott að eldast. Búið er að skrifa undir samning og þjónustan hefst formlega 1. janúar 2025. Öldungaráð fagnar verkefninu og framvindu þess.

    Kristín sagði einnig frá ráðstefnu LBÍ um störf öldungaráða á landsvísu. Mög mismunandi er hversu virk ráðin eru og hvernig greitt er fyrir störf þeirra. Fundir eru frá tveimur til átta á ári. Hún sagði einnig frá því að meiri aldursdrefing er í sumum öldungaráðum.

    Öldungaráð ræddi samsetningu ráðsins, kosti og galla þess.



  • Öldungaráð - 10 Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir undirbúning samfélagsmiðstöðvar. Öldungaráð leggur áherslu á að félag eldri borgara fái aðstöðu í samfélagsmiðstöðinni sem fyrst.
  • Öldungaráð - 10 Lögð fram til kynningar.
  • 7.4 2410027 Lífsgæðakjarni
    Öldungaráð - 10 Formaður kynnti nefnd um lífsgæðakjarna sem hefur það hlutverk að skoða möguleika á bygginga- og þjónustusvæði fyrir neðan Nestún.
Magnús Vignir Eðvaldsson kynnti fundargerð.

8.Stýrihópur um barnvænt og heilsueflandi sveitarfélag - 4

Málsnúmer 2410008FVakta málsnúmer

Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Stýrihópur um barnvænt og heilsueflandi sveitarfélag - 4 Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir skýrslu um stöðu innleiðingar á barnvænu og heilsueflandi sveitarfélagi.
    Stýrihópurinn samþykkir að fyrsti áfangi aðgerðaráætlunar verði stefnumörkun í þættinum Vellíðan án tóbaks, áfengis og annarra vímuefna. Einnig verður farið yfir spurningalista og þær spurningar teknar út sem ekki eiga við Húnaþing vestra. Sviðsstjóra er falið að gera drög að aðgerðaráætlun og stefnu. Samþykkt að skýrsla um stöðu verkefnisins verði birt á heimasíðu sveitarfélagsins.

9.Reglur Skagafjarðar um dagþjónustu, hæfingu og aðstoð vegna fatlaðs fólks

Málsnúmer 2410060Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir Reglur Skagafjarðar um dagþjónustu, hæfingu og aðstoð vegna fatlaðs fólks.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

10.Reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks

Málsnúmer 2410037Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir Reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

11.Viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2024

Málsnúmer 2411020Vakta málsnúmer

Lögð er fram eftirfarandi tillaga að breytingu á fjárhagsáætlun ársins 2024, en heildaráhrif viðaukans er kr. 0 á rekstur aðalsjóðs og undirfyrirtækja:

„00 - Útsvar
Álagning kr. -13.000.000

01 - Jöfnunarsjóður
Framlög kr. -35.259.000

02 - Félagsþjónusta
Seld þjónusta kr. 2.100.628
Laun og launatengd gjöld kr. -2.982.592
Aðkeypt þjónusta kr. 1.175.000
Húsaleigubætur kr. -1.002.816
Málefni fatlaðs fólks kr. 44.955.000
Tækjakaup kr. 105.000

04 - Fræðslu-og uppeldismál
Tekjur kr. 3.400.000
Laun og launatengd gjöld kr. -16.618.958
Aðkeypt þjónusta kr. 8.050.000
Minniháttar tæki kr. 2.200.000

05 - Menningarmál
Minniháttar tæki kr. 551.000

06 - Æskulýðs-og íþróttamál
Laun og launatengd gjöld kr. -1.725.523
Minniháttar tæki kr. 100.000

07 - Brunamál og almannavarnir
Minniháttar tæki kr. 3.305.000

09 - Skipulagsmál
Minniháttar tæki kr. 70.000

10 - Umferðar-og samgöngumál
Aðkeypt þjónusta kr. 17.220.000

11 - Umhverfismál
Laun og launatengd gjöld kr. -3.420.770

13 - Atvinnumál
Aðkeypt þjónusta kr. 203.000

21 - Sameiginlegur kostnaður
Laun og launatengd gjöld kr. -3.129.389
Tekjur kr. -2.210.765
Aðkeypt þjónusta kr. 3.180.000
Minniháttar tæki kr. 3.650.000
Önnur vörukaup kr. 500.000

31 - Eignasjóður
Aðkeypt þjónusta kr. 950.000
Minniháttar tæki kr. 400.000

43 - Vatnsveita
Vörukaup kr. 2.000.000
Aðkeypt þjónusta kr. 3.500.000

57 - Félagslegar íbúðir
Húsaleiga kr. 2.360.000

82 - Reykjaeignir
Viðhald fasteigna kr. 7.500.000

2190 - Ófyrirséð kr. -28.124.815

Kostnaður vegna málefna fatlaðs fólks hefur verið íþyngjandi fyrir rekstur sveitarfélagsins það sem af er ári.

Lífskjarasamningar hafa haft þau áhrif að almennt verða launahækkanir ársins lægri en upphaflega var gert ráð fyrir með það að markmiði að ná niður vöxtum og verðbólgu í landinu. Í endurskoðaðri launaáætlun er gert ráð fyrir að þau stéttarfélög sem enn eiga ósamið við Samband íslenskra sveitarfélaga, semji á sömu forsendum og þeir kjarasamningar sem þegar hafa verið undirritaðir. Lífskjarasamningarnir hafa m.a. haft þau áhrif að frá og með haustönn greiða foreldrar barna í grunnskóla ekki fyrir skólamáltíðir. Í viðauka þessum lækka tekjur grunnskólans um 12,2 milljónir króna vegna þessa.

Aðkeypt þjónusta ársins hækkar nokkuð, m.a. vegna ráðningarferla og nauðsynlegra endurbóta við stofnanir sveitarfélagsins m.a. vegna öryggis- og aðgangsmála.

Tjón varð á loftpressu á slökkvistöð sem nauðsynlegt er að endurnýja.

Langvarandi skerðing á viðhaldi gatna leiddi til viðhaldsframkvæmda sem ekki var séð fyrir í upphafi árs, auk þess sem kostnaður vegna rofs á vegi niður við höfn er um 5 milljónir króna. Jafnframt fer snjómokstur verulega fram úr áætlun, m.a. vegna hærri reikninga frá Vegagerðinni vegna helmingamoksturs auk þess sem kostnaður vegna moksturs gangstétta var vanmetinn í upphaflegri fjárhagsáætlun.

Óvæntar bilanir hafa orðið hjá Vatnsveitunni sem skýra ástæðu viðauka þessa, en leki kom m.a. upp í lögnum frá Mjóadal og Grákollu.

Óvænt viðhald hefur komið upp hjá Reykjaeignum.

Auknum útgjöldum vegna framlagðs viðauka er mætt með auknum tekjum, en bæði útsvar og framlög Jöfnunarsjóðsins verða hærri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins. Jafnframt er gengið á ófyrirséðan kostnað sem upphaflega var áætlaður 30 milljónir króna fyrir árið 2024.

Samhliða framlagningu viðauka er lagt fram málaflokkayfirlit sem sýnir áhrif viðaukans á einstaka málaflokka.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

12.Viðauki nr. 2 við fjárhagsáætlun 2024

Málsnúmer 2411021Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga að viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun ársins 2024 að upphæð kr. 14.500.000:

„Eignasjóður
Slökkvibifreiðar kr. 12.000.000

Félagslegar íbúðir
Endurbætun íbúða Nestúni kr. 2.500.000

Hækkun eignfærðrar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár.

Nauðsynlegt er að endurnýja bílaflota Brunavarna Húnaþings vestra. Fjárfesta þarf í tveimur bílum en á móti verða tveir bíla seldir, en með þessum breytingum verður viðbragð slökkviliðsins bætt til muna og þar með öryggi íbúa sveitarfélagsins. Beiðni slökkviliðstjóra var samþykkt á 1224. fundi byggðarráðs og sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála-og stjórnsýslusviðs var á sama fundi falið að undirbúa gerð viðauka.

Framkvæmdir í Nestúni voru umfangsmeiri en upphaflega var búist við.

Áhrif viðaukans eru engin á rekstrarniðurstöðu aðalsjóðs og undirfyrirtækja og því er ekki lagt fram málaflokkayfirlit samhliða viðaukanum.“


Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

13.Gjaldskrár 2025

Málsnúmer 2408023Vakta málsnúmer

GJALDSKRÁ FASTEIGNAGJALDA OG ÚTSVARS
Lögð fram tillaga að gjaldskrá fasteignagjalda og útsvars, ásamt reglum um afslátt af fasteignaskattið árið 2025:

„Útsvar






14,97 %

Fasteignaskattur A-gjald




0,475 % af fm. húss og lóðar
Fasteignaskattur B-gjald




1,32 % af fm. húss og lóðar
Fasteignaskattur C-gjald




1,32 % af fm. húss og lóðar
Lóðarleiga, almennt gjald




10,97 kr. pr. m2
Lóðarleiga, ræktað land




1,53 kr. pr. m2









Holræsagjald






0,21% af fm.húss og lóðar
Vatnsskattur






0,27% af fm. húss og lóðar
Aukavatnsskattur





33 kr. m3

Hreinsun rotþróa:
0-2000 lítra






18.240 kr. pr. þró
2001-4000 lítra




22.470 kr. pr. þró
4001-6000 lítra




24.560 kr. pr. þró
6001 lítra og stærri





6.200 kr. pr. m3


Sorpgjald á íbúðarhúsnæði, regluleg sorphirða.
100.000 kr.
Sorpeyðingargjald, sumarbústaðir og íbúðir í dreifbýli
þar sem ekki er hirt sorp.



43.000 kr.



Lóðarleigu og fasteignaskatt skv. A-, B- og C- gjaldi skal innheimta frá fyrstu skráningu hjá Fasteignamati ríkisins, en holræsagjald, vatnsskatt og sorpgjöld skal innheimta frá þeim tíma að fasteign hefur verið skráð með byggingarstig 4.

Gjalddagar
Gjalddagi gjalda undir kr. 20.000 er 1. maí.
Gjalddagar gjalda sem eru á bilinu kr. 20.001 - 38.000 eru 1. apríl og 1. júlí.

Fasteignagjöld eigna sem eru hærri en kr. 38.000 hafa 8 gjalddaga, frá 1. febrúar 2025 til 1. september 2025.


Reglur um afslátt af fasteignaskatti árið 2025.

Reglur um afslátt af fasteignaskatti til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega eru vegna íbúðarhúsnæðis þeirra til eigin nota og fyrir þá sem eiga lögheimili í Húnaþingi vestra. Afslátturinn er tekjutengdur og miðaður við árstekjur 2023 samkvæmt skattframtali 2024, þ.m.t. eigna- og fjármagnstekjur og tekur einungis til fasteignaskatts. Hámark afsláttar er kr. 100.000.

Tekjuviðmiðun:
Fyrir einstaklinga:
a)
Með heildartekjur allt að kr. 4.930.000 fær 100% afslátt, þó að hámarki kr. 100.000
b)
Með tekjur umfram kr. 6.652.000 enginn afsláttur.
Fyrir hjón og samskattað sambýlisfólk:
a)
Með heildartekjur allt að kr. 6.652.000 fær 100% afslátt, þó að hámarki kr. 100.000
b)
Með heildartekjur umfram kr. 8.797.000 enginn afsláttur.

Hlutfallslegur afsláttur er veittur samkvæmd framangreindu tekjubili.

Skilyrði fyrir niðurfellingu er að viðkomandi búi sjálfur í húsnæðinu og hafi ekki af því leigutekjur. Sé fasteign skráð með leyfi til heimagistingar fellur afsláttur af fasteignagjöldum með öllu niður árið 2025.

Í tilfelli hjóna eða sambýlisfólks, ræður aldur þess sem fyrr verður 67 ára án tillits til þess hvort þeirra er skráð fyrir eigninni.

Við andlát maka styrkir sveitarsjóður eftirlifandi um sömu upphæð og nemur álögðum fasteignaskatti ársins að fullu.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

GJALDSKRÁR TIL EINNAR UMRÆÐU
Lögð fram tillaga að gjaldskrá félagsþjónustu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir akstursþjónustu fyrir fatlað fólk.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Grunnskóla Húnaþings vestra, dreifnáms og fjarnámsstofu.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Leikskólans Ásgarðs.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Tónlistarskóla Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá bóka- og héraðsskjalasafns Húnaþings vestra og Félagsmiðstöðvarinnar Óríon.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Slökkviliðs Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá íþróttamiðstöðvar Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá geymslusvæða í Grænulaut.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Félagsheimilisins á Hvammstanga.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá þjónustumiðstöðvar.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

GJALDSKRÁR TIL SEINNI UMRÆÐU
Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir Hirðu, móttöku- og flokkunarstöð úrgangs í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá sorphirðu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir hreinsun og losun rotþróa í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir Hvammstangahöfn, hafnarsjóð.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Hitaveitu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Vatnsveitu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Brunavarna Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

14.Fjárhagsáætlun ársins 2025 og þriggja ára áætlun 2026-2028 fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra og undirfyrirtæki.

Málsnúmer 2408023Vakta málsnúmer

Lögð fram svohljóðandi tillaga:

„Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir framlagða fjárhagsáætlun fyrir árið 2025, ásamt 3ja ára áætlun fyrir árin 2026 - 2028.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Greinargerð með fjárhagsáætlun 2025

Undanfarin misseri hefur verðbólga á Íslandi farið lækkandi. Þegar unnið var að fjárhagsáætlun ársins 2025 var stuðst við spár Hagstofu Íslands ásamt spám viðskiptabankanna. Gert er ráð fyrir að almenn verðbólga á næsta ári verði 4,5%, en ársverðbólga m.v. 1. október 2024 er 5,1% eftir að hafa farið í 10,2% þann 1. febrúar 2023. Há verðbólga og vaxtastig hefur haft mikil áhrif á fjárhag Húnaþings vestra, en sveitarstjórn hefur brugðist við efnhagsumhverfinu með þeim hætti að draga úr lántökum sveitarfélagsins eins og kostur hefur verið. Vegna þessa er að draga mjög úr fjármagnskostnaði, en árið 2023 var hann 88,5 milljónir, en með 150 milljón króna áætlaðri lántöku árið 2025 er fjármagnskostnaður áætlaður 59,9 milljónir. Þeir fjármunir sem sparast í fjármagnskostnað verða nýttir til góðra verka eins og rakið verður hér á eftir.

Meginástæða þeirrar áherslu sveitarstjórnar að lágmarka lántökur er óhagstætt lánaumhverfi og fjármagnskostnaðurinn sem því fylgir. Þess í stað hefur verið reynt að fjárfesta fyrir eigið fé. Vaxtakjör verðtryggðra lána Lánasjóðs sveitarfélaga eru nú 4,3% á föstum vöxtum vegna 15 ára lánstíma, en síðasta lán sem tekið var árið 2022 er með 3% vöxtum. Árið 2021 var hins vegar hægt að fá lán með 1,02% vöxtum og um tíma var hægt að fá lán á undir 1% vöxtum hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Þannig munar 3,28 milljónum á ársvöxtum 100 milljón króna láns, án verðbólguáhrifa, eftir því hvort að vextirnir eru 1,02% eða 4,3%. Hér er því um nokkrar fjárhæðir að ræða.

Fjármagnskostnaður hækkaði jafnt og þétt á árunum 2019-2022 þegar hann náði hæst rúmum 100 milljónum. Síðan hefur hann lækkað jafnt og þétt vegna fyrrnefndrar áherslu sveitarstjórnar sem skiptir gríðarlegu máli í rekstrinum.Til glöggvunar á þeirri áskorun sem fjármagnskostnaður er í rekstri sveitarfélagsins er hér lögð fram þróun fjármagnskostnaðar A- og B-hluta hin síðari ár:

2019

kr. 13,0 millj.
2020

kr. 29,1 millj.
2021

kr. 54,9 millj.
2022

kr. 103,0 millj.
2023

kr. 88,5 millj.
2024 (áætl.)
kr. 71,0 millj.
2025 (áætl.)
kr. 59,8 millj.



Í fjárhagsáætlun ársins 2024 var gert ráð fyrir 100 milljón króna lántökuheimild, sem stefnt er á að nýta ekki. Væri lánaheimild ársins 2024 fullnýtt má ætla að fjármagnsgjöld árið 2025 yrðu 6,4 milljónum hærri en áætlað er. Áhrifa þess sparnaðar gætir næstu 15 ár sem er sá lánstími sem sveitarfélaginu stendur til boða. Þá fjármuni sem sparast í fjármagnskostnaði má nýta til brýnna verkefna í viðhaldi og fjárfestingum, þau verkefni eru ærin.

Jafnframt hafa lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna haft nokkur áhrif á fjárhag sveitarfélagsins og mun áfram verða. Bæði hafa lögin kallað á aukningu í stöðugildum sérfræðinga til að sinna málaflokknum ásamt því að kaupa þarf að þjónustu til að sinna ábyrgð Húnaþings vestra í kjölfar lagasetningarinnar. Áætlað framlag Jöfnunarsjóðsins vegna ársins 2024 eru 3,5 milljónir svo það er ljóst að stór hluti fellur á sveitarfélagið. Sveitarstjórn hefur brýnt fyrir þingmönnum kjördæmisins og ráðherrum að ríkið þurfi að veita meira fé í málaflokkinn, en lagasetningin var í raun löngu orðin tímabær.

Sveitarstjórn Húnaþings vestra fagnaði lífskjarasamningunum sem sátt náðist um árið 2024, sem leiddi m.a. til þess að gjaldskrárhækkanir sem fyrst og fremst vörðuðu barnafjölskyldur voru lækkaðar. Stærsti liðurinn í þessum breytingum voru gjaldfrjálsar skólamáltíðir frá og með hausti 2024. Markmið um lækkandi verðbólgu og vaxta í kjölfar lífskjarasamninganna virðist vera að nást hægt og bítandi en mikilvægt er fyrir langtímaáætlanagerð að kjarasamningar séu til langs tíma. Þessi breyting hefur engu að síður haft mikil áhrif á fjárhag sveitarfélagsins. Lagt var upp með að ríkið stæði straum af 75% af tekjutapi sveitarfélaganna með framlagi í gegnum Jöfnunarsjóð. Hins vegar er langur vegur frá því að það standist í tilfelli Húnaþings vestra. Kjarabótin er hins vegar óumdeild fyrir foreldra grunnskólabarna. Foreldrar sem eiga tvö börn í grunnskóla hefðu greitt rúm 210 þúsund fyrir skólamáltíðir barna sinna á árinu 2025 hefði ekki komið til lífskjarasamningsins.

Að lokinni viðbyggingu grunnskólans hefur verið dregið nokkuð úr fjárfestingu og viðhaldi vegna efnahagsumhverfisins sem ríkt hefur á Íslandi. Í fjárhagsáætlun ársins 2025 er gert ráð fyrir verulegri innspýtingu vegna uppsafnaðrar viðhaldsþarfar og jafnframt verður ráðist í auknar fjárfestingar. Af viðhaldsframkvæmdum má t.a.m. nefna 68 milljónir í nauðsynlegt viðhald gatna og gangstétta, 16,5 milljónir í viðhaldsframkvæmdir vatnsveitu samhliða viðhaldi gatna, 14,5 milljónir í viðhaldsframkvæmdir hitaveitu og 36,5 milljónir í viðhaldsframkvæmdir Reykjaeigna. 17,6 milljónir eru áætlaðir í snjómokstur árið 2025, fyrir utan vinnu starfsmanna sveitarfélagsins. Í snjómokstri hefur verið aukið við þjónustu með mokstri á gangstéttum auk þess sem hlutdeild sveitarfélagsins í snjómokstri í dreifbýli hefur aukist gríðarlega á milli ára, en allt árið 2023 var kostnaðurinn 2,4 milljónir á meðan kostnaðurinn er kominn í 7,8 milljónir fyrstu 6 mánuði ársins 2024. Kostnaður vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu vegna vinnu við aðal- og deiliskipulagsáætlanir árið 2025 er í kringum 15 milljónir en endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins er að hefjast. Gjaldfærsla lífeyrisskuldbindinga sveitarfélagsins er áætluð 33,2 milljónir. Áfram mun Húnaþing vestra þurfa að greiða með rekstri málaflokks fatlaðs fólks, en heildargreiðsla til leiðandi sveitarfélags, með 0,25% útsvarshlutfalli, er áætluð 32,7 milljónir.

Útsvarsprósenta ársins 2025 verður óbreytt frá núlíðandi ári, eða 14,97%. Áætlað er að útsvarstekjur muni hækka um 7% frá árinu 2024. Áskorun Húnaþings vestra er hins vegar hve lágt útsvar pr. íbúa er í sveitarfélaginu, á sama tíma og sveitarfélagið verður að halda úti lögbundinni þjónustu. Sem dæmi um áhrif þessa er að hefðu útsvarstekjur pr. íbúa verið þær sömu og á Skagaströnd fyrstu 8 mánuði ársins 2024 hefðu heildarútsvarstekjur Húnaþings vestra verið 95,1 milljónum hærri en þær voru í reynd og 157,1 milljónum hærri hefðu þær verið þær sömu og í Kópavogi. Stóra verkefnið framundan er því að finna leiðir til eflingar atvinnulífs svo útsvarstekjur hækki.

Álagning fasteignaskatts verður áfram 0,475% árið 2025. Sú ákvörðun er ítarlega rökstudd í bókun sveitarstjórnar á 374. fundi sem fram fór þann 17. október sl. Samhliða þessu eru tekjuviðmið reglna um afslátt af fasteignaskatti til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega hækkuð. Áætlaðar tekjur vegna fasteignagjalda hækka um 10,9% á milli ára, eða um 20,6 milljónir. Gjaldskrá sorphirðugjalda verður óbreytt frá árinu 2024 og verður tekin til endurskoðunar þegar framtíðarfyrirkomulag sorphirðu í sveitarfélaginu verður endanlega orðið ljóst en unnið er að því að leita leiða til að lækka þann kostnað um leið og auknum kröfum um meðhöndlun úrgangs verður mætt. Rétt er að geta þess að enn er verið að greiða með rekstri gámavallarins, en áætlað er að hann muni kosta sveitarfélagið 16,6 milljónir árið 2025.

Sveitarstjórn Húnaþings vestra ákvað að gjaldskrár yrðu almennt hækkaðar um 4,5% árið 2025, en þó eru gjaldskrár sem varða viðkvæma hópa hækkaðar um 3,5%, svo sem leikskóla. Þess ber einnig að geta að árskort í íþróttamiðstöð voru ekki hækkuð á milli ára.

Samkvæmt þeirri áætlun sem hér er lögð fram er rekstrarafkoma Húnaþings vestra á árinu 2025 áætluð jákvæð um 1,7 milljónir.

Sveitarstjórn Húnaþings vestra leggur sem fyrr mikið upp úr stuðningi við íþrótta- og tómstundastarf barna. Sveitarfélagið greiðir áframhaldandi fjárframlag til USVH, sem útdeilir því fjármagni til íþróttafélaganna í sveitarfélaginu sem gerir það að verkum að kostnaður foreldra vegna íþróttaiðkunar barna í Húnaþingi vestra er með því lægsta sem gerist á landinu, eða 15 þúsund krónur á önn óháð fjölda íþróttagreina sem börn leggja stund á. Frístundastyrkur til foreldra 0 - 18 ára barna verður kr. 25.000 árið 2025, en styrkurinn hefur hækkað um 25% frá árinu 2023. Auk þess er nú gerð sú breyting að styrkurinn nær til barna frá fæðingu í stað 6 ára áður. Íþróttafélögin, sem njóta ekki eingöngu fjárhagslegs styrks frá sveitarfélaginu heldur einnig gjaldfrjálsra afnota af íþróttamannvirkjum, bjóða upp á afar fjölbreytt íþróttastarf. Húnaþing vestra greiðir líkt og undanfarin ár akstursstyrki til foreldra í dreifbýli sem þurfa að keyra börn sín sérstaklega til og frá æfingum.

Húnaþing vestra veitir fjölmörgum félagasamtökum og menningarverkefnum styrki á árinu 2025 að fjárhæð alls 19,8 milljónir króna. Því til viðbótar eru greiddir styrkir til leikfélaga, styrkir vegna fasteignagjalda félagasamtaka, hitaveitu til félaga, afnota íþróttafélaga af íþróttamannvirkjum o.fl.

Í fjárhagsáætlun ársins 2025 er gert ráð fyrir að áfram verði fjármagni veitt í Atvinnu- og nýsköpunarsjóð Húnaþings vestra sem stofnaður var árið 2014 og það hækkað um 500 þúsund, í 2,5 milljónir. Sjóðnum er ætlað að styðja við frumkvöðla- og nýsköpunarstarf í sveitarfélaginu. Sjóðurinn hefur sannað gildi sitt sem mikilvægur stuðningur við nýsköpun og atvinnuþróun í sveitarfélaginu.

Fjárfesting ársins mun aukast verulega og verða alls 253,5 milljónir árið 2025 samanborið við 50 milljónir á árinu 2024. Ber þar hæst að nefna áframhaldandi endurbætur á Félagsheimilinu Hvammstanga, byggingu aðstöðuhúss við íþróttavöllinn í Kirkjuhvammi, fjárfestingu Vatnsveitu sem og fjárfestingu Hitaveitu.

Þrátt fyrir þær áskoranir sem sveitarstjórn hefur staðið frammi fyrir í rekstri sveitarfélagsins stendur reksturinn vel og stenst öll viðmið Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Húnaþing vestra fékk því ekki bréf frá nefndinni nú á haustdögum, líkt og fjölmörg önnur sveitarfélög.

Helstu lykiltölur fjárhagsáætlunar 2025-2028 eru eftirfarandi (upphæðir eru í þúsundum króna):




15.Skýrsla sveitarstjóra

Málsnúmer 2311018Vakta málsnúmer

Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri fór yfir helstu verkefni sín frá síðasta reglubundna sveitarstjórnarfundi. Skýrslan var flutt munnlega og til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?