Byggðarráð

1231. fundur 11. nóvember 2024 kl. 14:00 - 15:28 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2024

Málsnúmer 2411020Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs leggja fram tillögu að viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun ársins 2024 að upphæð kr. 0.

Lögð er til eftirfarandi breyting á fjárhagsáætlun ársins 2024:

00 - Útsvar
Álagning kr. -13.000.000

01 - Jöfnunarsjóður
Framlög kr. -35.259.000

02 - Félagsþjónusta
Seld þjónusta kr. 2.100.628
Laun og launatengd gjöld kr. -2.982.592
Aðkeypt þjónusta kr. 1.175.000
Húsaleigubætur kr. -1.002.816
Málefni fatlaðs fólks kr. 44.955.000
Tækjakaup kr. 105.000

04 - Fræðslu-og uppeldismál
Tekjur kr. 3.400.000
Laun og launatengd gjöld kr. -16.618.958
Aðkeypt þjónusta kr. 8.050.000
Minniháttar tæki kr. 2.200.000

05 - Menningarmál
Minniháttar tæki kr. 551.000

06 - Æskulýðs-og íþróttamál
Laun og launatengd gjöld kr. -1.725.523
Minniháttar tæki kr. 100.000

07 - Brunamál og almannavarnir
Minniháttar tæki kr. 3.305.000

09 - Skipulagsmál
Minniháttar tæki kr. 70.000

10 - Umferðar-og samgöngumál
Aðkeypt þjónusta kr. 17.220.000

11 - Umhverfismál
Laun og launatengd gjöld kr. -3.420.770

13 - Atvinnumál
Aðkeypt þjónusta kr. 203.000

21 - Sameiginlegur kostnaður
Laun og launatengd gjöld kr. -3.129.389
Tekjur kr. -2.210.765
Aðkeypt þjónusta kr. 3.180.000
Minniháttar tæki kr. 3.650.000
Önnur vörukaup kr. 500.000

31 - Eignasjóður
Aðkeypt þjónusta kr. 950.000
Minniháttar tæki kr. 400.000

43 - Vatnsveita
Vörukaup kr. 2.000.000
Aðkeypt þjónusta kr. 3.500.000

57 - Félagslegar íbúðir
Húsaleiga kr. 2.360.000

82 - Reykjaeignir
Viðhald fasteigna kr. 7.500.000

2190 - Ófyrirséð kr. -28.124.815

Kostnaður vegna málefna fatlaðs fólks hefur verið íþyngjandi fyrir rekstur sveitarfélagsins það sem af er ári.

Lífskjarasamningar hafa haft þau áhrif að almennt verða launahækkanir ársins lægri en upphaflega var gert ráð fyrir með það að markmiði að ná niður vöxtum og verðbólgu í landinu. Í endurskoðaðri launaáætlun er gert ráð fyrir að þau stéttarfélög sem enn eiga ósamið við Samband íslenskra sveitarfélaga, semji á sömu forsendum og þeir kjarasamningar sem þegar hafa verið undirritaðir. Lífskjarasamningarnir hafa m.a. haft þau áhrif að frá og með haustönn greiða foreldrar barna í grunnskóla ekki fyrir skólamáltíðir. Í viðauka þessum lækka tekjur grunnskólans um 12,2 milljónir króna vegna þessa.

Aðkeypt þjónusta ársins hækkar nokkuð, m.a. vegna ráðningarferla og nauðsynlegra endurbóta við stofnanir sveitarfélagsins m.a. vegna öryggis-og aðgangsmála.

Tjón varð á loftpressu á slökkvistöð sem nauðsynlegt er að endurnýja.

Langvarandi skerðing á viðhaldi gatna leiddi til viðhaldsframkvæmda sem ekki var séð fyrir í upphafi árs, auk þess sem kostnaður vegna rofs á vegi niður við höfn er um 5 milljónir króna. Jafnframt fer snjómokstur verulega fram úr áætlun, m.a. vegna hærri reikninga frá Vegagerðinni vegna helmingamoksturs auk þess sem kostnaður vegna moksturs gangstétta var vanmetinn í upphaflegri fjárhagsáætlun.

Óvæntar bilanir hafa orðið hjá Vatnsveitunni sem skýra ástæðu viðauka þessa, en leki kom m.a. upp í lögnum frá Mjóadal og Grákollu.

Óvænt viðhald hefur komið upp hjá Reykjaeignum.

Auknum útgjöldum vegna framlagðs viðauka er mætt með auknum tekjum, en bæði útsvar og framlög Jöfnunarsjóðsins verða hærri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins. Jafnframt er gengið á ófyrirséðan kostnað sem upphaflega var áætlaður 30 milljónir króna fyrir árið 2024.

Samhliða framlagningu viðauka er lagt fram málaflokkayfirlit sem sýnir áhrif viðaukans á einstaka málaflokka.

Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

2.Viðauki nr. 2 við fjárhagsáætlun 2024

Málsnúmer 2411021Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs leggja fram tillögu að viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun ársins 2024 að upphæð kr. 14.500.000.

Lögð er til eftirfarandi breyting á fjárhagsáætlun ársins 2024:

Eignasjóður
Slökkvibifreiðar kr. 12.000.000

Félagslegar íbúðir
Endurbætun íbúða Nestúni kr. 2.500.000

Hækkun eignfærðrar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár.

Nauðsynlegt er að endurnýja bílaflota Brunavarna Húnaþings vestra. Fjárfesta þarf í tveimur bílum en á móti verða tveir bíla seldir, en með þessum breytingum verður viðbragð slökkviliðsins bætt til muna og þar með öryggi íbúa sveitarfélagsins. Beiðni slökkviliðstjóra var samþykkt á 1224. fundi byggðarráðs og sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála-og stjórnsýslusviðs var á sama fundi falið að undirbúa gerð viðauka.

Framkvæmdir í Nestúni voru umfangsmeiri en upphaflega var búist við.

Samhliða framlagningu viðauka er lagt fram málaflokkayfirlit sem sýnir áhrif viðaukans á einstaka málaflokka.

Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

3.Fjárhagsáætlun 2025

Málsnúmer 2408023Vakta málsnúmer

Byggðarráð samþykkir framlögð drög og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

4.Styrkumsókn vegna uppsetningar á söngleik

Málsnúmer 2410067Vakta málsnúmer

Á fjárhagsáætlun ársins 2024 er gert ráð fyrir kr. 200.000 í styrki til leikfélaga, deild 0581. Byggðarráð samþykkir veitingu styrks í samræmi við það, að fjárhæð kr. 200.000, til Leikflokks Húnaþings vestra.

5.Reglur Skagafjarðar um dagþjónustu, hæfingu og aðstoð vegna fatlaðs fólks

Málsnúmer 2410060Vakta málsnúmer

Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

6.Mannauðsstefna

Málsnúmer 2410061Vakta málsnúmer

Byggðarráð samþykkir að drögin verði sett í samráð meðal starfsmanna sveitarfélagsins.

7.Áskorun til sveitarstjórna á Norðurlandi vestra

Málsnúmer 2411004Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

8.Ósk um afslátt af leigu Félagsheimilisins á Hvammstanga

Málsnúmer 2410063Vakta málsnúmer

Byggðarráð samþykkir veitingu afsláttar vegna viðburða í samfélagsþágu í samræmi við gjaldskrá Félagsheimilisins Hvammstanga.

9.Ósk um framlengingu á húsaleigusamningi - Garðavegur 20

Málsnúmer 2411011Vakta málsnúmer

Byggðarráð samþykkir framlengingu leigusamnings vegna íbúðar að Garðavegi 20 nh. til 6 mánaða frá 1. desember 2024 til 31. maí 2025.

10.Styrkumsókn fyrir árið 2025

Málsnúmer 2410064Vakta málsnúmer

Ekki er hægt að verða við styrkbeiðninni.

11.Ágóðahlutagreiðsla Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands 2024

Málsnúmer 2410058Vakta málsnúmer

Hlutur Húnaþings vestra í ágóðahlutagreiðslu er kr. 476.500.

12.Velferðarnefnd Alþingis - mál til umsagnar - tillaga til þingsályktunar um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum

Málsnúmer 2411009Vakta málsnúmer

Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.

13.Velferðarnefnd Alþingis - mál til umsagnar - frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra

Málsnúmer 2411008Vakta málsnúmer

Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.

14.Fundargerð 953. fundar

Málsnúmer 2410066Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynninga.

15.Fundargerð 954. fundar

Málsnúmer 2411010Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

16.Fundargerð 466. fundar

Málsnúmer 2411012Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

17.Fundargerð 113. fundar stjórnar SSNV 16. september 2024

Málsnúmer 2411019Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

18.Fundargerð 114. fundar stjórnar SSNV 5. nóvember 2024

Málsnúmer 2411018Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:28.

Var efnið á síðunni hjálplegt?