Ósk um afslátt af leigu Félagsheimilisins á Hvammstanga

Málsnúmer 2410063

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1231. fundur - 11.11.2024

Húnaklúbburinn óskar eftir afslætti á leigu félagsheimilisins á Hvammstanga dagana 26. til 29. nóvember næstkomandi vegna heimsóknar erlendra ungmenna í tengslum við verkefnið Miðnæturljós.
Byggðarráð samþykkir veitingu afsláttar vegna viðburða í samfélagsþágu í samræmi við gjaldskrá Félagsheimilisins Hvammstanga.
Var efnið á síðunni hjálplegt?