Stýrihópur um barnvænt og heilsueflandi sveitarfélag

4. fundur 22. október 2024 kl. 16:00 - 18:00 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
  • Tanja Ennigarð aðalmaður
  • Bogi Magnusen Kristinsson aðalmaður
  • Elín Jóna Rósinberg aðalmaður
  • Eydís Bára Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Pálína Fanney Skúladóttir aðalmaður
  • Jóhann Örn Finnsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Sigurður Þór Ágústsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
Jóhann Örn Finnsson vék af fundi kl. 16:30

1.Spurningalistar heilsueflandi og barnvæns sveitarfélags

Málsnúmer 2403009Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir skýrslu um stöðu innleiðingar á barnvænu og heilsueflandi sveitarfélagi.
Stýrihópurinn samþykkir að fyrsti áfangi aðgerðaráætlunar verði stefnumörkun í þættinum Vellíðan án tóbaks, áfengis og annarra vímuefna. Einnig verður farið yfir spurningalista og þær spurningar teknar út sem ekki eiga við Húnaþing vestra. Sviðsstjóra er falið að gera drög að aðgerðaráætlun og stefnu. Samþykkt að skýrsla um stöðu verkefnisins verði birt á heimasíðu sveitarfélagsins.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?