Byggðarráð - 1231

Málsnúmer 2410012F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 385. fundur - 14.11.2024

Formaður byggðarráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1231 Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs leggja fram tillögu að viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun ársins 2024 að upphæð kr. 0.

    Lögð er til eftirfarandi breyting á fjárhagsáætlun ársins 2024:

    00 - Útsvar
    Álagning kr. -13.000.000

    01 - Jöfnunarsjóður
    Framlög kr. -35.259.000

    02 - Félagsþjónusta
    Seld þjónusta kr. 2.100.628
    Laun og launatengd gjöld kr. -2.982.592
    Aðkeypt þjónusta kr. 1.175.000
    Húsaleigubætur kr. -1.002.816
    Málefni fatlaðs fólks kr. 44.955.000
    Tækjakaup kr. 105.000

    04 - Fræðslu-og uppeldismál
    Tekjur kr. 3.400.000
    Laun og launatengd gjöld kr. -16.618.958
    Aðkeypt þjónusta kr. 8.050.000
    Minniháttar tæki kr. 2.200.000

    05 - Menningarmál
    Minniháttar tæki kr. 551.000

    06 - Æskulýðs-og íþróttamál
    Laun og launatengd gjöld kr. -1.725.523
    Minniháttar tæki kr. 100.000

    07 - Brunamál og almannavarnir
    Minniháttar tæki kr. 3.305.000

    09 - Skipulagsmál
    Minniháttar tæki kr. 70.000

    10 - Umferðar-og samgöngumál
    Aðkeypt þjónusta kr. 17.220.000

    11 - Umhverfismál
    Laun og launatengd gjöld kr. -3.420.770

    13 - Atvinnumál
    Aðkeypt þjónusta kr. 203.000

    21 - Sameiginlegur kostnaður
    Laun og launatengd gjöld kr. -3.129.389
    Tekjur kr. -2.210.765
    Aðkeypt þjónusta kr. 3.180.000
    Minniháttar tæki kr. 3.650.000
    Önnur vörukaup kr. 500.000

    31 - Eignasjóður
    Aðkeypt þjónusta kr. 950.000
    Minniháttar tæki kr. 400.000

    43 - Vatnsveita
    Vörukaup kr. 2.000.000
    Aðkeypt þjónusta kr. 3.500.000

    57 - Félagslegar íbúðir
    Húsaleiga kr. 2.360.000

    82 - Reykjaeignir
    Viðhald fasteigna kr. 7.500.000

    2190 - Ófyrirséð kr. -28.124.815

    Kostnaður vegna málefna fatlaðs fólks hefur verið íþyngjandi fyrir rekstur sveitarfélagsins það sem af er ári.

    Lífskjarasamningar hafa haft þau áhrif að almennt verða launahækkanir ársins lægri en upphaflega var gert ráð fyrir með það að markmiði að ná niður vöxtum og verðbólgu í landinu. Í endurskoðaðri launaáætlun er gert ráð fyrir að þau stéttarfélög sem enn eiga ósamið við Samband íslenskra sveitarfélaga, semji á sömu forsendum og þeir kjarasamningar sem þegar hafa verið undirritaðir. Lífskjarasamningarnir hafa m.a. haft þau áhrif að frá og með haustönn greiða foreldrar barna í grunnskóla ekki fyrir skólamáltíðir. Í viðauka þessum lækka tekjur grunnskólans um 12,2 milljónir króna vegna þessa.

    Aðkeypt þjónusta ársins hækkar nokkuð, m.a. vegna ráðningarferla og nauðsynlegra endurbóta við stofnanir sveitarfélagsins m.a. vegna öryggis-og aðgangsmála.

    Tjón varð á loftpressu á slökkvistöð sem nauðsynlegt er að endurnýja.

    Langvarandi skerðing á viðhaldi gatna leiddi til viðhaldsframkvæmda sem ekki var séð fyrir í upphafi árs, auk þess sem kostnaður vegna rofs á vegi niður við höfn er um 5 milljónir króna. Jafnframt fer snjómokstur verulega fram úr áætlun, m.a. vegna hærri reikninga frá Vegagerðinni vegna helmingamoksturs auk þess sem kostnaður vegna moksturs gangstétta var vanmetinn í upphaflegri fjárhagsáætlun.

    Óvæntar bilanir hafa orðið hjá Vatnsveitunni sem skýra ástæðu viðauka þessa, en leki kom m.a. upp í lögnum frá Mjóadal og Grákollu.

    Óvænt viðhald hefur komið upp hjá Reykjaeignum.

    Auknum útgjöldum vegna framlagðs viðauka er mætt með auknum tekjum, en bæði útsvar og framlög Jöfnunarsjóðsins verða hærri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins. Jafnframt er gengið á ófyrirséðan kostnað sem upphaflega var áætlaður 30 milljónir króna fyrir árið 2024.

    Samhliða framlagningu viðauka er lagt fram málaflokkayfirlit sem sýnir áhrif viðaukans á einstaka málaflokka.

    Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
  • Byggðarráð - 1231 Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs leggja fram tillögu að viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun ársins 2024 að upphæð kr. 14.500.000.

    Lögð er til eftirfarandi breyting á fjárhagsáætlun ársins 2024:

    Eignasjóður
    Slökkvibifreiðar kr. 12.000.000

    Félagslegar íbúðir
    Endurbætun íbúða Nestúni kr. 2.500.000

    Hækkun eignfærðrar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár.

    Nauðsynlegt er að endurnýja bílaflota Brunavarna Húnaþings vestra. Fjárfesta þarf í tveimur bílum en á móti verða tveir bíla seldir, en með þessum breytingum verður viðbragð slökkviliðsins bætt til muna og þar með öryggi íbúa sveitarfélagsins. Beiðni slökkviliðstjóra var samþykkt á 1224. fundi byggðarráðs og sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála-og stjórnsýslusviðs var á sama fundi falið að undirbúa gerð viðauka.

    Framkvæmdir í Nestúni voru umfangsmeiri en upphaflega var búist við.

    Samhliða framlagningu viðauka er lagt fram málaflokkayfirlit sem sýnir áhrif viðaukans á einstaka málaflokka.

    Byggðarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
  • Byggðarráð - 1231 Byggðarráð samþykkir framlögð drög og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
  • Byggðarráð - 1231 Á fjárhagsáætlun ársins 2024 er gert ráð fyrir kr. 200.000 í styrki til leikfélaga, deild 0581. Byggðarráð samþykkir veitingu styrks í samræmi við það, að fjárhæð kr. 200.000, til Leikflokks Húnaþings vestra. Bókun fundar Þorleifur Karl vék af fundi kl. 15:16 og Magnús Magnússon varaoddviti tók við fundarstjórn.
    Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.
    Þorleifur Karl kom aftur til fundar kl. 15:18 og tók við fundarstjórn að nýju.
  • Byggðarráð - 1231 Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
  • .6 2410061 Mannauðsstefna
    Byggðarráð - 1231 Byggðarráð samþykkir að drögin verði sett í samráð meðal starfsmanna sveitarfélagsins.
  • Byggðarráð - 1231 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Samþykkt að senda áskorun fulltrúa kennara og skólastjórnenda á Norðurlandi vestra til kynningar í fræðsluráði.
  • Byggðarráð - 1231 Byggðarráð samþykkir veitingu afsláttar vegna viðburða í samfélagsþágu í samræmi við gjaldskrá Félagsheimilisins Hvammstanga. Bókun fundar Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Byggðarráð - 1231 Byggðarráð samþykkir framlengingu leigusamnings vegna íbúðar að Garðavegi 20 nh. til 6 mánaða frá 1. desember 2024 til 31. maí 2025.
  • Byggðarráð - 1231 Ekki er hægt að verða við styrkbeiðninni.
  • Byggðarráð - 1231 Hlutur Húnaþings vestra í ágóðahlutagreiðslu er kr. 476.500.
  • Byggðarráð - 1231 Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.
  • Byggðarráð - 1231 Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.
  • Byggðarráð - 1231 Lögð fram til kynninga.
  • Byggðarráð - 1231 Lögð fram til kynningar.
  • Byggðarráð - 1231 Lögð fram til kynningar.
  • Byggðarráð - 1231 Lögð fram til kynningar.
  • Byggðarráð - 1231 Lögð fram til kynningar.
Var efnið á síðunni hjálplegt?