Landbúnaðarráð - 215

Málsnúmer 2411008F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 386. fundur - 12.12.2024

Formaður landbúnaðarráðs kynnti fundargerðina.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • .1 2408023 Fjárhagsáætlun 2025
    Landbúnaðarráð - 215 Sveitarstjóri fór yfir fjárhagsramma ráðsins fyrir árið 2025.
  • .2 2411057 Skýrsla búfjáreftirlitsmanns árið 2024
    Landbúnaðarráð - 215 Júlíus Guðni Antonsson, búfjáreftirlitsmaður gerði grein fyrir störfum sínum á árinu.

    Skráð voru 22 atvik vegna búfjáreftirlits á árinu, helmingur vegna hrossa og helmingur vegna sauðfjár.

    Landbúnaðarráð þakkar Júlíusi Guðna fyrir greinagóða yfirferð.
  • .3 2408006 Skýrsla veiðivarðar vegna gæsa- og rjúpnaveiða haustið 2024
    Landbúnaðarráð - 215 Júlíus Guðni Antonsson veiðivörður gerði grein fyrir störfum sínum á nýliðnu veiðitímabili.

    Veiðieftirlitið gekk vel árið 2024. Farnar voru þrjár eftirlitsferðir á Víðidalstunguheiði og ein á Arnarvatnsheiði, allar vegna rjúpnaveiða. Ekki þurfti að hafa afskipti af veiðimönnum í þessum ferðum. Veginum fram á Víðidalstunguheiði var lokað eina helgi vegna bleytu. Almennt virðist vera ánægja með fyrirkomulag veiðanna, stjórn og vöktun sveitarfélagsins á svæðinu.

    Landbúnaðarráð þakkar Júlíusi Guðna greinagóða yfirferð.
  • .4 2409085 Vetrarveiði á ref veturinn 2024-2025
    Landbúnaðarráð - 215 Lagðar fram umsóknir um vetrarveiði á ref veturinn 2024-2025. Auglýst var eftir veiðimönnum á þau tvö svæði sem ekki höfðu borist umsóknir um. Eftirfarandi umsóknir bárust:

    Hannes Hilmarsson vegna veiða í vestanverðum Hrútafirði.
    Björn Viðar Unnsteinsson vegna veiða í Vesturhópi.

    Landbúnaðarráð felur sveitarstjóra að gera samninga við framangreinda umsækjendur.
    Bókun fundar Afgreiðsla landbúnaðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • .5 2406059 Uppgjör styrkvega 2024
    Landbúnaðarráð - 215 Lagt fram á 214. fundi ráðsins. Uppgjörið hefur verið sent til Vegagerðarinnar.
  • .6 2402064 Uppgjör heiðagirðinga 2024
    Landbúnaðarráð - 215 Lagt fram á 214. fundi ráðsins.
  • .7 2412008 Uppgjör rjúpna- og gæsaveiða 2024
    Landbúnaðarráð - 215 Lagt fram til kynningar uppgjör rjúpna- og gæsaveiða 2024.
Var efnið á síðunni hjálplegt?