Akstursstyrkir vegna leikskólabarna

Umsóknum um styrki vegna aksturs barna til vistunar í leikskóla tímabilið janúar til júlí árið 2012, ber að skila á skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, Hvammstanga sem allra fyrst.

Sækja þarf um á þar til gerðum eyðublöðum sem fást á skrifstofu sveitarfélagsins, einnig er hægt að nálgast þau á heimasíðunni www.hunathing.is undir liðnum eyðublöð.

Með umsókninni þarf að fylgja staðfesting leikskólastjóra.

Nánari upplýsingar veitir skrifstofustjóri í síma 455-2400

Ath. Sækja þarf um styrkinn innan tveggja mánaða frá birtingu auglýsingar annars fellur hann niður.

Skrifstofustjóri.

Var efnið á síðunni hjálplegt?