Atvinna í félagslegri heimaþjónustu í boði!

Atvinna í félagslegri heimaþjónustu í boði!

Atvinna í félagslegri heimaþjónustu í boði!

Fjölskyldusvið Húnaþings vestra leitar að starfskrafti í félagslegri heimaþjónustu frá 18. apríl til október 2017, gæti orðið framtíðarstarf.

Um er að ræða 50-75% starf í heimaþjónustu á Hvammstanga og í dreifbýli. Til greina kemur að ráða í fasta stöðu eða semja um minna hlutfall sem aukavinnu.

Starfið felst í því að sjá um almenn þrif í heimahúsum, fara í sendiferðir (t.d. innkaup) og veita persónulega aðstoð.

Þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum og almenn kunnátta við þrif eru nauðsynleg.

Laun eru greidd skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Starfsgreinasambands Íslands.

Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við Henrike Wappler, yfirfélagsráðgjafa, í síma 455-2400.

Umsóknarfrestur er til 3. apríl 2017

Var efnið á síðunni hjálplegt?