Húnaþing vestra auglýsir hér með eftir umsóknum um úthlutun styrkja úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra.
Markmið Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs Húnaþings vestra er að hvetja til jákvæðrar umræðu og verkefna á sviði atvinnuþróunar í sveitarfélaginu. Sjóðnum er ætlað að styðja við frumkvæði íbúa og hvetja til samstarfs og nýsköpunar í sveitarfélaginu.
Áherslur Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs Húnaþings vestra lúta að verkefnum sem stuðlað geta að auknum umsvifum, betri afkomu og rekstri fyrirtækja og þróun og nýsköpun í atvinnulífi í Húnaþingi vestra. Styrkir sem veittir eru úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra eru fyrst og fremst verkefna- og framkvæmdastyrkir, ekki rekstrarstyrkir eða styrkir til að mæta opinberum gjöldum eða greiða skuldir.
Væntanlegum umsækjendum og öðrum áhugasömum er bent á að kynna sér úthlutunarreglur Atvinnu- og nýsköpunarsjóðs, umsóknareyðublað er að finna HÉR.
Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri í síma 455-2400 eða á netfanginu rjona@hunathing.is
Umsóknir skulu berast á netfangið skrifstofa@hunathing.is eigi síðar en 12. júlí nk.
Hvammstangi 18. júní 2021
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri.