Bókun byggðarráðs vegna samgönguáætlunar

Bókun byggðarráðs vegna samgönguáætlunar

Byggðarráð Húnaþings vestra fjallaði um stöðu mála við afgreiðslu samgönguáætlunar á 1216. fundi sínum sem haldinn var þann 19. júní sl. Lýsti ráðið þungum áhyggjum af stöðunni. Svohljóðandi var bókað:

Fregnir hafa borist af því að samgönguáætlun verði ekki afgreidd á því þingi sem nú er að ljúka. Málinu var vísað til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis þann 10. október 2023, fyrir rúmum 8 mánuðum. Byggðarráð furðar sig á því að ekki hafi verið hægt að komast að samkomulagi innan nefndarinnar á þeim tíma. Jafnframt lýsir ráðið yfir þungum áhyggjum af þeim töfum sem óhjákvæmilega verða vegna þessa á brýnum samgönguúrbótum um land allt.

Bókuninni hefur verið komið á framfæri við umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis og þingmenn kjördæmisins.

Var efnið á síðunni hjálplegt?