Könnun vegna fyrirhugaðrar ljósleiðaravæðingar í þéttbýli í Húnaþingi vestra

Mynd: Unsplash.
Mynd: Unsplash.

Húnaþing vestra áformar að taka tilboði háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytis um að ljósleiðaravæða þau heimili í þéttbýli sveitarfélagsins sem eru ekki nú þegar komin með ljósleiðaratengingu. Sjá nánar hér.

Áður en framkvæmdir hefjast á grundvelli styrks frá sjóðnum þá þarf sveitarfélagið að kanna eftirfarandi:

  1. hvort fjarskiptafyrirtæki hyggjast tengja styrkhæf heimilisföng á markaðslegum forsendum. Lista yfir styrkhæf heimilisföng er hægt að nálgast hjá Húnaþingi vestra,
  2. hvort fjarskiptafyrirtæki hyggjast leggja og tengja eigið ljósleiðaranet í skurði/lagnaleiðir sem sveitarfélagið kostar.

Þau fjarskiptafyrirtæki sem kunna að hafa áhuga geta haft samband við sveitarstjóra fyrir 16. ágúst n.k. í netfangið unnur@hunathing.is

Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri.

Var efnið á síðunni hjálplegt?