DAGSKRÁ
11:00 UPPHITUN - “GÓÐ RÁÐ ÁRIÐ UM KRING” -
Jónas Guðmundsson (Landsbjörg/Safetravel) kynnir áherslur í
upplýsingagjöf til ferðamanna að vetrarlagi
12:00 SÚPA og SPJALL
13:00 Inngangur
13:10 „Ferðamannalandið Ísland: Draumaland eða Djöflaeyja?“
Konráð Guðjónsson frá Arionbanka kynnir nýjustu ferðaþjónustuúttekt frá greiningardeild bankans.
13:45 1 + 1 = 3
Ásta Björg Sigurjónsdóttir frá Íslenska ferðaklasanum ræðir um nýsköpun og þróun í ferðaþjónustu og tækifæri í svæðisbundinni samvinnu
14:15 “BÍ, BÍ OG BLAKA”
Tormod Amundsen frá Biotope kynnir tillögur sínar um uppbyggingu fuglaskoðunarstaða Fuglastígs Norðurlands vestra (á ensku)
14:45 KAFFIHLÉ
15:15 HÓPAVINNA
Hópar taka til starfa á fimm borðum og skilgreina/tilgreina tillögur að samstarfsverkefnum í ferðaþjónustu á eftirfarandi sviðum :
- MATUR & DRYKKUR
- SAGA & MENNING
- HANDVERK & HÖNNUN
- HESTAR & AFÞREYING
- NÁTTÚRA & ORKA
16:15 STUTTAR KYNNINGAR HÓPA
16:45 SAMANTEKT/ENDIR
Við bjóðum alla ferðaþjónustuaðila og þá sem hafa áhuga á samstarfi við greinina hjartanlega velkomna að hlýða á áhugaverða fyrirlestra og móta með okkur áhugaverð samstarfsverkefni.
Velkomið er að taka með sér auglýsingaefni og láta liggja frammi í andyri Húnavers yfir daginn.
Skráning til 7. Nóvember n.k.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest !
SSNV og Ferðamálafélögin í A-Hún, Húnaþingi vestra og Skagafirði