Tímanlega fimmtudaginn 3. september n.k. skulu allir leitarmenn vera mættir á fremstu bæjum, tilbúnir að leggja upp á heiðar undir stjórn leitarstjóranna. Gangnamenn yngri en 16 ára verða ekki teknir gildir sem leitarmenn nema með samþykki viðkomandi leitarstjóra. Í 1. leit skal smala ofan bæði sauðfé og hrossum. Skulu hross af öllum viðkomandi heiðum sett til geymslu í girðinguna norðan við Laxahvamm. Gangi leitir samkvæmt áætlun, skulu þeir sem reka stóðið frá heiðargirðingum í safngirðingu að kvöldi 4. sept. koma því til réttar laugardaginn 5. sept. kl. 9 f.h. og hefst þá stóðrétt. Fjárrétt hefst síðar sama dag, strax og söfnin koma til réttar.
Fjallskilanefnd beinir því til leitarstjóra að láta smala syðri hluta afréttar fimmtudaginn 3. sept. ef veður leyfir.
Ákveði fjallskilanefnd að fella niður eitthvað af álagðri fjallskilavinnu munu viðkomandi aðilar ekki fá hana greidda. Sama gildir ef menn skila ekki þeirri vinnu sem á þá er lögð.
Leitarstjórar skulu brýna fyrir mönnum sínum að hefja ekki leit fyrr en fullvíst er að röð leitarmanna geti haldist á heiðum.
Fjallskilanefnd mælist eindregið til þess við gangnamenn, að þeir klæðist áberandi litum hlífðarfatnaði og noti viðeigandi öryggishjálma í göngum.
Vinna eftirtalinna manna verður sem hér segir í 1. leit:
Aðalbólsheiði:
Kjálki:
Kristófer Finnmörk 2 menn og sé Kristófer leitarstjóri, Ólafur Urriðaá 1 mann, Gunnar E-Fitjum 1 mann, Pétur Torfustöðum 2 menn, reki þeir stóð til réttar og sé annar þeirra rekstrarstjóri, Kjartan Barkarstöðum 1 mann.
Níels Fitjum 2 menn og reki þeir stóð til réttar.
Tungan:
Félagsbúið Ósi 3 menn og sé Jón leitarstjóri, Þorvaldur Ytra-Bjargi 1 mann, Með ehf.Ytri-Reykjum 1 mann, Gunnar Ægir Björnsson 1 mann, Ari Guðmundur Bergsstöðum 1 mann. Sigrún Bjargi 2 menn.
Athugið: Af ofantöldum mönnum þurfa ekki að mæta fyrr en með bílnum á fimmtudagskvöld. Gagnamaður Kjartans, gagnamaður Þorvaldar og annar maður Kristófers.
Akstur á Aðalbólsheiði: Níels á Fitjum. Á hann að fara frá Laugarbakka fimmtudagskvöldið þann 3. sept. kl. 1800.
Núpsheiði:
Þórarinn Rafnsson 2 menn og sé Þórarinn leitarstjóri, Rafn á Staðarbakka 5 menn og útvegi flutningshest, Sigfús Jónsson 1 mann, Guðný Bessastöðum 1 mann, Gísli Staðarbakka 3 menn og reki einn þeirra stóð til réttar, Magnús Magnússon 2 menn og reki þeir stóð til réttar og sé Magnús rekstrarstjóri. Guðmundur Neðra-Núpi 5 menn. Sigurður Ingvi Bálkastöðum 1 mann og reki hann stóð til réttar, Guðni Þór Melstað 1 mann og reki hann stóð til réttar.
Akstur að heiðargirðingu: Guðmundur Neðra-Núpi.
Húksheiði:
Sveðjustaðabúið ehf. 1 mann, Már Hermannsson 1 mann, Gunnlaugur Söndum 1 mann, Félagsbúið Skarfshóli 1 mann, Félagsbúið Búrfelli 2 menn og útvegi félagsbúið flutningshest. Böðvar Sigvaldi Mýrum 2 menn og sé Böðvar Sigvaldi leitarstjóri, Davíð Svarðbæli 1 mann, Arinbjörn Brekkulæk 1 mann. Karl Mýrum 1 mann.
Helgi Huppahlíð 1 mann
Akstur að heiðargirðingu: Félagsbúið Búrfelli.
Riminn:
Gunnar Fitjum 1 mann og reki hann stóð af Núpsheiði til safngirðingar, Helgi Huppahlíð 1 mann og Karl Mýrum 1 mann og smali hann austur í Núpsdal.
Athugið:
Menn frá félagsbúinu Skarfshóli og Helga í Hupphlíð reki stóð af Húksheiði til réttar ef það er til staðar. Ef ekki er stóð til að reka til réttar af Húksheiði þá reki áðurnefndir menn safnið til réttar ásamt öðrum gagnamönnum.
Marklýsing á sauðfé: Ari Skarfshóli og Gerður Reykjum.
Marklýsing á hrossum: Eggert Bjargshóli og Sigurður Ingvi Bálkastöðum.
Réttarstjóri í öllum réttum: Helgi Heggsstöðum.
Hirða fé (og setja á bíla) úr Hrútatungurétt (aðalrétt og seinni rétt): Ingimar Uppsölum og Ingi Hjörtur N-Svertingsstöðum. Flytja fé úr Hrútatungurétt, (aðalrétt og seinni rétt.) Karl Mýrum, Böðvar Sigvaldi Mýrum, Rafn Staðarbakka.
Heimalandasmölun verði laugardaginn 26.september og skilarétt sunnudaginn 27. september kl. 1400.
Þá er landeigendum bent á V. Kafla 28.grein fjallskilasamþykktar fyrir Húnaþing vestra, um hreinsun heimalanda og fjallskil en þar segir:
“Ábúenda eða eigenda jarðar er skylt að smala land sitt og þau heimalönd sem hann hefur til umráða svo oft sem fjallskilastjórn ákveður þótt hann eigi ekki fjárvon sjálfur.Einnig eftir að skyldusmölun er lokið sé grunur um að þar sé búfé að finna. Geri hann það ekki skal fjallskilastjórn láta smala landið á kostnað eigenda. Skilarétt skal halda haust hvert og á þeim stað og tíma sem fjallskilastjórn ákveður “.
Fjallskilaboð þetta er skv. ákvörðun fjallskilanefndar Miðfirðinga frá 10. ágúst s.l.
Rafn Benediktsson.
Valgerður Kristjánsdóttir.
Böðvar Sigvaldi Böðvarsson.
MAT Á FJALLSKILUM MIÐFIRÐINGA 2015.
Menn Verð pr.ein Samtals
Aðalbólsheiði 14 22.281 311.934
Aðalbólsheiði 4 14.933 59.732
Núpsheiði 21 23.358 490.524
Húksheiði 12 23.358 280.300
Rimi 2 11.823 23.646
Rimi-Karl 1 10.979 10.979
Leitarstjórar 4 4.496 17.984
Hirða fé úr Hrútatungurétt 2 15.745 31.490
Akstur á Aðalbólsheiði 1 18.924 18.924
Marklýsing á hrossum 2 1.750 3.501
Marklýsing á sauðfé 2 2.966 5.933
Réttarstjóri í öllum réttum 1 15.399 15.399
Akstur að heiðargirðingum Núps og Vesturárdal 2 5.238 10.477
Flutningshestar 2 2.114 4.227
Samtals kr. 1.285.050
Karl Mýrum hver ferð úr Hrútatungurétt kr. 20.461 Böðvar Sigvaldi Mýrum hver ferð úr Hrútatungurétt 13.168 og Rafn Staðarbakka 18.012 hver ferð úr Hrútatungurétt.
Verð á klst í eftirleitum kr. 2.130.
Akstur v/eftirleitar verður greiddur eftir gildandi taxta.
Staðarbakka 10. ágúst 2015.
Fjallskilanefnd Miðfirðinga