Fjallskilaboð Miðfirðinga 2021

Fjallskilaboð Miðfirðinga 2021

FJALLSKILABOÐ

Miðfirðinga haustið 2021.

 

Tímanlega fimmtudaginn 2. september n.k. skulu allir leitarmenn vera mættir á fremstu bæjum, tilbúnir að leggja upp á heiðar undir stjórn leitarstjóranna. Gangnamenn yngri en 16 ára verða ekki teknir gildir sem leitarmenn nema með samþykki viðkomandi leitarstjóra. Í 1. leit skal smala ofan bæði sauðfé og hrossum.

Gangi leitir samkvæmt áætlun, skulu þeir sem reka stóðið frá heiðargirðingum í safngirðingu að kvöldi 3. sept. koma því til réttar laugardaginn 4. sept. kl. 7.00 f.h. og hefst þá stóðrétt. Fjárrétt hefst síðar sama dag, strax og söfnin koma til réttar.

Fjallskilanefnd beinir því til leitarstjóra að láta smala syðri hluta afréttar fimmtudaginn 2. sept. ef veður leyfir.

Ákveði fjallskilanefnd að fella niður eitthvað af álagðri fjallskilavinnu munu viðkomandi aðilar ekki fá hana greidda. Sama gildir ef menn skila ekki þeirri vinnu sem á þá er lögð.

Leitarstjórar skulu brýna fyrir mönnum sínum að hefja ekki leit fyrr en fullvíst er að röð leitarmanna geti haldist á heiðum.

Fjallskilanefnd mælist eindregið til þess við gangnamenn, að þeir klæðist áberandi hlífðarfatnaði og noti viðeigandi öryggishjálma í göngum.

Vinna eftirtalinna manna verður sem hér segir í 1. leit:

 

Aðalbólsheiði:

Kjálki:

Kristófer Finnmörk 2 menn og sé Kristófer leitarstjóri, Ólafur Urriðaá 1 mann, Jóhannes Geir E-Fitjum 1 mann, Kjartan Barkarstöðum 2 menn, Pétur Torfustöðum 2 menn, reki þeir stóð til réttar og sé annar þeirra rekstrarstjóri. Guðrún Fitjum 1 mann og reki hann stóð til réttar.

Tungan:

Gunnar Ægir Reykjum 4 menn og einn af þeim reki hrossin til réttar, sé Gunnar leitarstjóri, Félagsbúið Ósi 3 menn,Valur Bjargi 2 menn og reki annar þeirra hross til réttar.

 

Akstur á Aðalbólsheiði:

Kristófer Finnmörk, á að fara frá Laugarbakka fimmtudaginn 3. sept. kl. 1500 stundvíslega.

Núpsheiði:

Þórarinn Rafnsson 4 menn, sé Þórarinn leitarstjóri og flytji trúss, Rafn á Staðarbakka 2 menn, Sigfús Jónsson 1 mann, Guðný Bessastöðum 1 mann, Gísli Staðarbakka 3 menn og reki einn þeirra stóð til réttar, Magnús Magnússon 3 menn og reki þeir stóð til réttar og sé Magnús rekstrarstjóri. Guðmundur Neðra-Núpi 2 menn. Sigurður Ingvi Bálkastöðum 2 menn og reki annar þeirra stóð til réttar, Guðni Þór Melstað 1 mann og reki hann stóð til réttar. Davíð Tjarnarkoti 1 mann. Sveinbjörn Sveðjustöðum 1 mann.

Akstur að heiðargirðingu: Sigurður Ingvi Bálkastöðum.

 

 

Húksheiði:

Bjarni Reynhólum 2 menn, Birkir Söndum 1 mann, Félagsbúið Skarfshóli 1 mann, Félagsbúið Búrfelli 2 menn, Böðvar Sigvaldi Mýrum 2 menn, sé Böðvar Sigvaldi leitarstjóri og flytji trúss. Páll Jóhannesson 1 mann, Karl Mýrum 1 mann. Elínbjörg Huppahlíð 2 menn.

Akstur að heiðargirðingu; Már Hermannsson.

 

Riminn:

Gunnar Fitjum 1 mann og reki hann stóð af Núpsheiði til safngirðingar, Karl Mýrum 1 mann og smali hann austur í Núpsdal.

 

Athugið:

Gangnamaður frá félagsbúinu Skarfshóli og 1 maður frá Elínbjörgu í Huppahlíð reki stóð af Húksheiði til réttar ef það er til staðar. Ef ekki er stóð til að reka til réttar af Húksheiði þá reki áðurnefndir menn fjársafnið til réttar ásamt öðrum gangnamönnum.

Marklýsing á sauðfé: Ari Skarfshóli og Gerður Reykjum.

Marklýsing á hrossum: Eggert Bjargshóli og Sigurður Ingvi Bálkastöðum.

Réttarstjórar í hrossa- og fjárrétt 4.sept: Helgi Heggsstöðum og Sveinbjörn Magnússon, réttarstjóri í skilarétt 26.sept. Helgi Pálsson.

Hirða fé (og setja á bíla) úr Hrútatungurétt (aðalrétt og seinni rétt): Ingi Hjörtur N-Svertingsstöðum 2 menn. Flytja fé úr Hrútatungurétt, (aðalrétt og seinni rétt.) Karl á Mýrum, Böðvar Sigvaldi á Mýrum, Rafn á Staðarbakka.

 

Heimalandasmölun verði laugardaginn 25. september og skilarétt sunnudaginn 26. september kl. 1400.

 

Þá er landeigendum bent á V. Kafla 28.grein fjallskilasamþykktar fyrir Húnaþing vestra, um hreinsun heimalanda og fjallskil en þar segir:

“Ábúenda eða eigenda jarðar er skylt að smala land sitt og þau heimalönd sem hann hefur til umráða svo oft sem fjallskilastjórn ákveður þótt hann eigi ekki fjárvon sjálfur. Einnig eftir að skyldusmölun er lokið sé grunur um að þar sé búfé að finna. Geri hann það ekki skal fjallskilastjórn láta smala landið á kostnað eigenda. Skilarétt skal halda haust hvert og á þeim stað og tíma sem fjallskilastjórn ákveður “.

 

Ábúendur eða eigendur jarða skulu koma óskilafé til skilaréttar í tæka tíð þann 26. September.

Athugið að mönnum er frjálst að skila af sér óskilafé alla vikuna fyrir skilarétt í safngirðinguna við Miðfjarðarrétt.

Ef sóttvarnarreglur vegna covid 19 verða með þeim hætti þegar farið skal í göngur að ekki verði hægt að framkvæma þær eins og að framan er lýst verða gangnastjórar boðaðir á fund með fjallskilastjórn til að aðstoða við gerð nýrrar áætlunar. Komi til þess getur það haft í för með sér breitingar á vinnuframlagi manna í göngum.

 

Fjallskilaboð þetta er skv. ákvörðun fjallskilanefndar Miðfirðinga frá 6. ágúst s.l.

 

Ebba Gunnarsdóttir.

Rafn Benediktsson.

Valgerður Kristjánsdóttir.

 

 

 

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?