Tímanlega fimmtudaginn 6. september n.k. skulu allir leitarmenn vera mættir á fremstu bæjum, tilbúnir að leggja upp á heiðar undir stjórn leitarstjóranna. Gangnamenn yngri en 16 ára verða ekki teknir gildir sem leitarmenn nema með samþykki viðkomandi leitarstjóra. Í 1. leit skal smala ofan bæði sauðfé og hrossum.
Vakin er athygli á nýrri safngirðingu sem staðsett er í landi Brekkulækjar norðan Miðfjarðarréttar og skulu hross af öllum viðkomandi heiðum sett til geymslu þar. Gangi leitir samkvæmt áætlun, skulu þeir sem reka stóðið frá heiðargirðingum í safngirðingu að kvöldi 7. sept. koma því til réttar laugardaginn 8. sept. kl. 9 f.h. og hefst þá stóðrétt. Fjárrétt hefst síðar sama dag, strax og söfnin koma til réttar.
Fjallskilanefnd beinir því til leitarstjóra að láta smala syðri hluta afréttar fimmtudaginn 6. sept. ef veður leyfir.
Ákveði fjallskilanefnd að fella niður eitthvað af álagðri fjallskilavinnu munu viðkomandi aðilar ekki fá hana greidda. Sama gildir ef menn skila ekki þeirri vinnu sem á þá er lögð.
Leitarstjórar skulu brýna fyrir mönnum sínum að hefja ekki leit fyrr en fullvíst er að röð leitarmanna geti haldist á heiðum.
Fjallskilanefnd mælist eindregið til þess við gangnamenn, að þeir klæðist áberandi hlífðarfatnaði og noti viðeigandi öryggishjálma í göngum.
Vinna eftirtalinna manna verður sem hér segir í 1. leit:
Aðalbólsheiði:
Kjálki:
Kristófer Finnmörk 2 menn og sé Kristófer leitarstjóri, Ólafur Urriðaá 1 mann, Gunnar E-Fitjum 1 mann, Kjartan Barkarstöðum 1 mann, Pétur Torfustöðum 2 menn, reki þeir stóð til réttar og sé annar þeirra rekstrarstjóri. Níels Fitjum 2 menn og reki þeir stóð til réttar.
Tungan:
Ari Guðmundur Bergsstöðum 1 mann og sé Ari leitarstjóri, Félagsbúið Ósi 3 menn, Þorvaldur Ytra-Bjargi 1 mann, Reykjaháls ehf 2 menn, Valur Bjargi 2 menn.
Akstur á Aðalbólsheiði:
Níels Fitjum, á að fara frá Laugarbakka fimmtudaginn 6. sept. kl. 1500 stundvíslega.
Núpsheiði:
Þórarinn Rafnsson 3 menn og sé Þórarinn leitarstjóri, Rafn á Staðarbakka 4 menn og útvegi flutningshest, Sigfús Jónsson 1 mann, Guðný Bessastöðum 1 mann, Gísli Staðarbakka 3 menn og reki einn þeirra stóð til réttar, Magnús Magnússon 3 menn og reki þeir stóð til réttar og sé Magnús rekstrarstjóri. Guðmundur Neðra-Núpi 2 menn. Sigurður Ingvi Bálkastöðum 2 menn og reki annar þeirra stóð til réttar, Guðni Þór Melstað 1 mann og reki hann stóð til réttar. Davíð Tjarnarkoti 1 mann.
Akstur að heiðargirðingu: Guðmundur Neðra-Núpi.
Húksheiði:
Már Hermannsson 2 menn, Gunnlaugur Söndum 1 mann, Félagsbúið Skarfshóli 1 mann, Félagsbúið Búrfelli 2 menn og útvegi Félagsbúið flutningshest. Böðvar Sigvaldi Mýrum 2 menn og sé Böðvar Sigvaldi leitarstjóri, Páll Jóhannesson 1 mann, Karl Mýrum 1 mann. Helgi Huppahlíð 2 menn.
Akstur að heiðargirðingu: Félagsbúið Búrfelli.
Riminn:
Gunnar Fitjum 1 mann og reki hann stóð af Núpsheiði til safngirðingar, Helgi Huppahlíð 1 mann og Karl Mýrum 1 mann og smali hann austur í Núpsdal.
Athugið:
Gangnamaður frá félagsbúinu Skarfshóli og 1 maður frá Helga í Huppahlíð reki stóð af Húksheiði til réttar ef það er til staðar. Ef ekki er stóð til að reka til réttar af Húksheiði þá reki áðurnefndir menn fjársafnið til réttar ásamt öðrum gangnamönnum.
Marklýsing á sauðfé: Ari Skarfshóli og Gerður Reykjum.
Marklýsing á hrossum: Eggert Bjargshóli og Sigurður Ingvi Bálkastöðum.
Réttarstjóri í öllum réttum: Helgi Heggsstöðum.
Hirða fé (og setja á bíla) úr Hrútatungurétt (aðalrétt og seinni rétt): Ingimar Uppsölum og Ingi Hjörtur N-Svertingsstöðum. Flytja fé úr Hrútatungurétt, (aðalrétt og seinni rétt.) Karl á Mýrum, Böðvar Sigvaldi á Mýrum, Rafn Staðarbakka.
Heimalandasmölun verði laugardaginn 29.september og skilarétt sunnudaginn 30. september kl. 1400.
Þá er landeigendum bent á V. Kafla 28.grein fjallskilasamþykktar fyrir Húnaþing vestra, um hreinsun heimalanda og fjallskil en þar segir:
“Ábúenda eða eigenda jarðar er skylt að smala land sitt og þau heimalönd sem hann hefur til umráða svo oft sem fjallskilastjórn ákveður þótt hann eigi ekki fjárvon sjálfur. Einnig eftir að skyldusmölun er lokið sé grunur um að þar sé búfé að finna. Geri hann það ekki skal fjallskilastjórn láta smala landið á kostnað eigenda. Skilarétt skal halda haust hvert og á þeim stað og tíma sem fjallskilastjórn ákveður “.
Ábúendur eða eigendur jarða skulu koma óskilafé til skilaréttar í tæka tíð þann 30. September.
Athugið að mönnum er frjálst að skila af sér óskilafé alla vikuna fyrir skilarétt í nýju safngirðinguna við Miðfjarðarrétt.
Fjallskilaboð þetta er skv. ákvörðun fjallskilanefndar Miðfirðinga frá 13. ágúst s.l.
Rafn Benediktsson.
Valgerður Kristjánsdóttir.
Ebba Gunnarsdóttir.
MAT Á FJALLSKILUM MIÐFIRÐINGA 2018
Menn Verð pr.ein Samtals
Aðalbólsheiði 18 26.024 468.432
Núpsheiði 21 27.283 572.943
Húksheiði 12 27.283 327.396
Rimi 2 13.809 27.618
Rimi-Karl 1 12.823 12.823
Leitarstjórar 4 5.252 21.008
Hirða fé úr Hrútatungurétt 2 18.390 36.782
Akstur á Aðalbólsheiði 1 21.490 21.490
Marklýsing á hrossum 2 2.045 4.090
Marklýsing á sauðfé 2 3.464 6.928
Réttarstjóri í öllum réttum 1 17.987 17.987
Akstur að heiðargirðingum Núps og Vesturárdal 2 6.118 12.236
Flutningshestar 2 2.469 4.938
Samtals kr. 1.534.671
Karl Mýrum hver ferð úr Hrútatungurétt kr. 23.900 Böðvar Sigvaldi Mýrum hver ferð úr Hrútatungurétt 15.380 og Rafn Staðarbakka 21.039 hver ferð úr Hrútatungurétt.
Verð á klst í eftirleitum kr. 2.500.
Akstur v/eftirleitar verður greiddur eftir gildandi taxta.
Staðarbakka 13. ágúst 2018.
Fjallskilanefnd Miðfirðinga
Rafn Benediktsson (sign)
Valgerður Kristjánsdóttir (sign)
Ebba Gunnarsdóttir ( sign)