Á fundi stjórnar Fjallskiladeildar Hrútfirðinga að austan þann 15. ágúst 2017 var samþykkt að í haust verði fjallskil á svæðinu með eftirfarandi hætti:
Fyrsta leit fari fram fimmtudaginn 7. og föstudaginn 8. september og réttað verði að morgni laugardagsins 9. september. Leit skal haga þannig að allt svæðið, þ.e. bæði heiðin og Meladalur verði smöluð á sama tíma.
Kl. 12 á hádegi fimmtudaginn 7. september skulu 7 leitarmenn vera ferðafærir við Bláhæð. Verkefni þeirra verður að smala fremsta hluta heiðarinnar. Eftirtalin bú leggi til þessa menn:
Eyjanes 2 menn, Reykir II 2 menn, Akurbrekka 1 mann, Þóroddsstaðir 1 mann og Óspaksstaðir 1 mann.
Að kvöldi fimmtudagsins 7. september skulu vera mættir 20 leitarmenn í leitarmannaskála. Eftirtalin bú leggi til þessa menn:
Jaðar 1 mann, Tannstaðabakki 1 mann, Eyjanes 3 menn, Reykir II 4 menn, Akurbrekka 2 menn, Þóroddsstaðir 3 menn, Brautarholt 1 mann, Hvalshöfði 1 mann, Bálkastaðir I 1 mann, Hrútatunga 1 mann og Óspaksstaðir 2 menn.
Að morgni föstudagsins 8. september kl. 8.00 skulu vera mættir 5 leitarmenn við Bláhæð. Eftirtalin bú leggi til menn:
Eyjanes 2 menn, Akurbrekka 1 mann, Þóroddsstaðir 1 mann og Óspaksstaðir 1 mann.
Fjallkóngur 1. leitar er Þorsteinn á Reykjum.
Réttarstörf hefjast kl. 9.00 laugardaginn 9. september.
Réttarstjóri í Hrútatungurétt verði Guðmundur á Jaðri og marklýsingamenn Aðalheiður á Reykjum og Matthildur Hjálmarsdóttir.
Skilamaður í Miðfjarðarrétt verði Ásgeir í Brautarholti.
Æskilegt er að leitarmenn séu klæddir litsterkum utanyfirfötum á meðan leit stendur og noti viðeigandi öryggishjálma/búnað.
Munið eftir skærlitu vestunum, þið sem hafið þau!
Leitarmenn eru minntir á að leitum er ekki lokið fyrr en allt safnið er komið inn í safngirðingu!
Önnur leit fari fram laugardaginn 16. september, nema veður hamli. Leitarmenn skulu vera ferðafærir kl. 8.30 við Leirhnjúk.
Eftirtalin bú leggi til menn, alls 15, þar af 3 á Meladal:
Tannstaðabakki 1 mann, Eyjanes 1 mann, Reykir II 2 menn, Akurbrekka 2 menn, Þóroddsstaðir 1 mann, Brautarholt 1 mann, Hvalshöfði 1 mann, Bálkastaðir I 1 mann, Hrútatunga 1 mann og Óspaksstaðir 1 mann.
Á Meladal: Reykir II 1 mann, Eyjanes 1 mann og Óspaksstaðir 1 mann.
Fjallkóngur seinni leitar verði Árni á Bálkastöðum.
Akstur á fé frá hliði við Síká í annari leit: Búið á Reykjum II.
Akstur á fé úr Dæld í annari leit: Jaðarsbúið.
Heimalandasmalanir verði tvær. Sú fyrri fari fram laugardaginn 23. september og skilarétt fari fram sunnudaginn 24. september og hefjist kl. 10.00. Seinni heimalandasmölun fari fram laugardaginn 14. október og segi menn til fjár er fram kemur þá.
Skilamaður í skilarétt Miðfirðinga verði Gunnar á Þóroddsstöðum.
Mat á fjallskilaskyldri vinnu:
Fyrsta leit, mæting á Bláhæð 7. september 26.730,-kr
Fyrsta leit, mæting í skála 19.000,-kr
Fyrsta leit, mæting á Bláhæð 8. september 16.180,-kr
Önnur leit, smölun á afrétt 16.880,-kr
Önnur leit, smölun á Meladal 12.660,-kr
Leitarstjóri 25% af gangnamati
Réttarstjóri 8.440,-kr
Marklýsing 2.810,-kr
Skilamaður Miðfjarðarrétt 8.440,-kr
Akstur á fé úr Miðfjarðarrétt 12.510,-kr pr. ferð
Skilarétt Miðfirði og akstur 5.630,- + 12.510,-kr pr. ferð
Akstur á fé frá hliði við Síká í annari leit 12.510,-kr pr. ferð
Akstur á fé úr Dæld í annari leit 12.510,-kr pr. ferð
Fjallskilastjórn Hrútfirðinga að austan