Á fundi stjórnar Fjallskiladeildar Hrútfirðinga að austan þann 14. ágúst 2018
var samþykkt að í haust verði fjallskil á svæðinu með eftirfarandi hætti:
Fyrsta leit fari fram fimmtudaginn 6. og föstudaginn 7. september og réttað verði að morgni laugardagsins 8. september. Leit skal haga þannig að allt svæðið, þ.e. bæði heiðin og Meladalur verði smöluð á sama tíma.
Kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 6. september skulu 7 leitarmenn vera ferðafærir við Bláhæð. Verkefni þeirra verður að smala fremsta hluta heiðarinnar. Eftirtalin bú leggi til þessa menn: Eyjanes 1 mann - Reykir II 2 menn - Akurbrekka 2 menn - Þóroddsstaðir 1 mann - Óspaksstaðir 1 mann
Að kvöldi fimmtudagsins 6. september skulu vera mættir 20 leitarmenn í leitarmannaskála. Eftirtalin bú leggi til þessa menn: Jaðar 1 mann - Tannstaðabakki 1 mann - Eyjanes 2 menn - Reykir II 3 menn - Akurbrekka 3 menn - Þóroddsstaðir 3 menn - Brautarholt 1 mann - Hvalshöfði 1 mann - Bálkastaðir I 1 mann- Hrútatunga 1 mann - Óspaksstaðir 3 menn.
Að morgni föstudagsins 7. september kl. 8.00skulu vera mættir 5 leitarmenn við Bláhæð. Eftirtalin bú leggi til menn: Reykir II 2 menn - Akurbrekka 1 mann - Þóroddsstaðir 1 mann - Óspaksstaðir 1 mann.
Fjallkóngur 1. leitar er Þorsteinn á Reykjum.
Réttarstörf hefjast kl. 9.00 laugardaginn 8. september.
Réttarstjóri í Hrútatungurétt verði Guðmundur á Jaðri
Marklýsing er í höndum Aðalheiðar á Reykjum og Matthildar Hjálmarsdóttur.
Skilamaður í Miðfjarðarrétt verði Ásgeir í Brautarholti.
Æskilegt er að leitarmenn séu klæddir litsterkum utanyfirfötum á meðan leit stendur og noti viðeigandi öryggishjálma/búnað.
Munið eftir skærlitu vestunum, þið sem hafið þau!
Leitarmenn eru minntir á að leitum er ekki lokið fyrr en allt
safnið er komið inn í safngirðingu!
Önnur leit fari fram laugardaginn 15. september,
Nema veður hamli. Leitarmenn skulu vera ferðafærir kl. 8.30 við Leirhnjúk.
Eftirtalin bú leggi til menn, alls 15, þar af 3 á Meladal:
Tannstaðabakki 1 mann - Eyjanes 1 mann - Reykir II 2 menn - Akurbrekka 2 menn - Þóroddsstaðir 1 mann - Brautarholt 1 mann - Hvalshöfði 1 mann, Bálkastaðir I 1 mann - Hrútatunga 1 mann - Óspaksstaðir 1 mann.
Á Meladal: Reykir II 1 mann - Akurbrekka 1 mann - Óspaksstaðir 1 mann.
Fjallkóngur 2. leitar verði Árni á Bálkastöðum.
Akstur á fé frá hliði við Síká í annari leit: Búið á Reykjum II.
Akstur á fé úr Dæld í annari leit: Jaðarsbúið.
Heimalandasmalanir verði tvær. Sú fyrri fari fram laugardaginn 29. september og
skilarétt fari fram sunnudaginn 30. september og hefjist kl. 10.00
Seinni heimalandasmölun fari fram laugardaginn 13. október og
segi menn til fjár er fram kemur þá.
Skilamaður í skilarétt Miðfirðinga verði Gunnar á Þóroddsstöðum.
Mat á fjallskilaskyldri vinnu:
Fyrsta leit, mæting á Bláhæð 6. sept. 28.100,-kr
Fyrsta leit, mæting í skála að kvöldi 6.sept. 19.950,-kr
Fyrsta leit, mæting á Bláhæð 7. sept. 17.000,-kr
Önnur leit, smölun á afrétt 17.700,-kr
Önnur leit, smölun á Meladal 13.300,-kr
Leitarstjóri 25% af gangnamati
Réttarstjóri 8.850,-kr
Marklýsing 2.950,-kr
Skilamaður Miðfjarðarrétt 9.000,-kr
Akstur á fé úr Miðfjarðarrétt 13.500,-kr pr. ferð
Skilarétt Miðfirði og akstur 6.000,- + 13.500,-kr pr. ferð
Akstur á fé frá hliði við Síká í annari leit 13.500,-kr pr. ferð
Akstur á fé úr Dæld í annari leit 13.500,-kr pr. ferð
Fjallskilastjórn Hrútfirðinga að austan
Guðmundur Ísfeld
Jón Kristján Sæmundsson
Jóhann Böðvarsson