Fjallskilaseðill
Vatnsnesinga haustið 2019
Göngur fari fram laugardaginn 14. september 2019.
Þorgrímsstaðadal smali 5 menn undir stjórn Lofts Guðjónssonar á Ásbjarnarstöðum.
Í þær göngur leggi til;
Loftur Ásbjarnarstöðum 3 menn, Þorbjörg og Óskar Þorgrímsstöðum 2 menn. Smalað verður norður og réttað á Ásbjarnarstöðum.
Útfjallið smali 13 menn undir stjórn Benedikts á Bergsstöðum.
Í þær göngur leggi til;
Benedikt Bergsstöðum 5 menn, Þormóður Sauðadalsá 2 menn,
Sauðá 5 menn, Æðarvarp Illugastöðum 1 mann.
Miðpart fjallsins smali 17 menn undir stjórn Herdísar í Grafarkoti.
Í þær göngur leggi til;
Þormóður Sauðadalsá 4 menn,
Ágúst Gröf 2 menn,Kolbrún Stella Lindarbergi 2 menn, Jón Hilmar Grænahvammi 1 mann, Guðmundur Helguhvammi 1 mann, Magnús Helguhvammi 3 menn, Pálmi Syðri-Völlum 1 mann,
Indriði Grafarkoti 3 menn.
Fremsta hluta fjallsins smali 7 menn undir stjórn Halldórs í Vatnshól.
Í þær göngur leggi til;
Halldór Vatnshól 5 menn, Sigurbjartur Múla 1 mann,
Indriði Grafarkoti 1 mann
Smalað verður austur og réttað í Vatnshól.
Til að hirða fé í Þverárrétt leggi til;
Loftur Ásbjarnarstöðum 2 menn. Fé sem kemur fyrir í Þverárrétt verður skilið eftir í Helguhvammi og Hamarsrétt.
Til að vakta safnið meðan réttað er í Hamarsrétt, leggi til;
Loftur Ásbjarnastöðum 2 menn.
Marklýsingarmenn í Hamarsrétt;
Guðni Sauðá og Halldór Vatnshól
Réttarstjórn í Hamarsrétt; Þormóður Ingi Heimisson, Sauðadalsá.
Almenn skyldusmölun verður 12. október.
Ekki er gert ráð fyrir eftirleit, en metið verður seinna í haust hvort þörf er á því.
Gangnamat kr. 5.000,-
Gangna- og réttarstjórn kr. 2.500,-
Vakta safnið kr 1.200.-
Marklýsing kr. 1.000.-
Þverárrétt kr. 4.500,-
Fjallskilagjald á kind kr. 60,-
Fjallskilagjald á hross kr. 120,-
Skyldusmölun á hrossum verður laugardaginn 02. nóvember 2019
Hamarsrétt 22. ágúst 2019
Þormóður Ingi Heimisson
Ágúst Þorbjörnsson
Auðbjörg Kristín Magnúsdóttir