Fjallskilaseðill Vatnsnesinga haustið 2024

Fjallskilaseðill Vatnsnesinga haustið 2024

Göngur fari fram laugardaginn 14. september 2024

Þorgrímsstaðadal smali 5 menn undir stjórn Lofts á Ásbjarnarstöðum.

Í þær göngur leggi til:
Ásbjarnarstaðir 3 menn, Sauðadalsá 1 mann og Sauðá 1 mann.

Útfjallið smali 13 menn undir stjórn Magnúsar á Bergsstöðum.

Í þær göngur leggi til:
Bergsstaðri 5 menn, Sauðadalsá 2 menn, Sauðá 5 menn og Illugastaðir 1 mann.

Miðpart fjallsins smali 17 menn undir stjórn Herdísar í Grafarkoti.

Í þær göngur leggi til:
Sauðadalsá 4 menn, Syðri-Kárastaðir 1 mann, Gröf 2 menn, Lindarberg 2 menn, Grænihvammur 1 mann, Helguhvammur I 1 mann, Helguhvammur II 3 menn,  Syðri-Vellir 1 mann og Grafarkot 2 menn,

Framfjallið smali 8 menn undir stjórn Indriða í Grafarkoti.

Í þær göngur leggi til:
Grafarkot 3 menn, Múli 1 mann, Neðra-Vatnshorn 1 mann og Vatnshóll 3 menn.

Til að hirða fé í Þverárrétt.
Ásbjarnarstaðir 2 menn.
Fé sem kemur fyrir í Þverárrétt verður skilið eftir í Hamarsrétt.

Til að vakta safnið meðan réttað er í Hamarsr´3ett.
Ásbjarnarstaðir 1 mann.

Marklýsingarmenn í Hamarsrétt:
Guðni Sauðá og Magnús Bergsstöðum

Réttarstjórn í Hamarsrétt: 
Þormóður Sauðadalsá

Almenn skyldusmölun verður 12. október.

Gangnamat kr. 6.000,-
Gangna- og réttarstjórn kr. 3.000,-
Vakta safnið kr. 1.500,-
Marklýsing kr. 1.250,-
Þverárrétt kr. 5.500,-

Fjallskilagjald á kind kr. 75,-
Fjallskilagjald á hross kr. 150,-

 

Efra-Vatnshorni 15. ágúst 2024

Halldór Líndal Jósafatsson
Ágúst Jóhann Þorbjörnsson
Indriði Karlsson

 

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?