Forgangsverkefni áfangastaðaáætlunar

Hvítserkur. Mynd: Róbert Daníel Jónsson.
Hvítserkur. Mynd: Róbert Daníel Jónsson.

Húnaþing vestra auglýsir eftir hugmyndum að uppbyggingarverkefnum í ferðaþjónustu til að setja á forgangslista fyrir áfangastaðaáætlun Norðurlands. Forgangsverkefni á áfangastaðaáætlun fá auka stig við mat á umsóknum í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.

Skila þarf inn greinagóðri lýsingu á verkefnum, upplýsingar um hagsmunaaðila ásamt samþykki allra landeigenda ef við á. Einnig skal taka fram hvort til stendur að sækja um styrk í framkvæmdasjóðinn til verkefnisins í úthlutun þessa árs.

Frestur til að skila inn hugmyndum að uppbyggingarverkefnum er til og með föstudagsins 30. ágúst.

Tekið er á móti verkefnahugmyndum á þar til gerðu eyðublaði hér.

Áfangastaðaáætlun fyrir Norðurland var fyrst unnin 2018. Í áætluninni er stöðumat á ferðaþjónustu á Norðurlandi og forgangsröðun verkefna til næstu þriggja ára. Nánari upplýsingar um þau verkefni og áfangastaðaáætlunina er hægt að skoða hér.

Undanfarin ár hafa sömu verkefni verið skilgreind sem forgangsverkefni í Húnaþingi vestra. Þau eru:

  • Vatnsnes.
  • Borðeyri.
  • Reykjatangi.
  • Kolugljúfur.
  • Stígakerfi við Hvammstanga og víðar.
Var efnið á síðunni hjálplegt?