Grunnskólinn og leikskólinn opnir á morgun.

Á morgun föstudaginn 13. desember verður ekki skólaakstur en skólinn  og leikskólinn verða opnir.

Í grunnskólanum verður ekki hefðbundin kennsla eftir stundaskrá en verkefni útbúin fyrir þá sem mæta. Foreldrar á Hvammstanga sem kjósa að senda börnin ekki til skóla láti skólann vita í síma 455-2900 eða á netfangið grunnskoli@hunathing.is í fyrramálið. Það er mikilvægt vegna áætlunar í mat.    Ekki verður farið í matsal þar sem erfitt verður að tryggja öryggi í þröngum snjóruðningum á götunum en útbúið verður morgun- og hádegishressing til neyslu í skólanum.

Var efnið á síðunni hjálplegt?