Handbendi brúðuleikhús hlýtur styrk úr Sviðslistasjóði 2025

Handbendi brúðuleikhús hlýtur styrk úr Sviðslistasjóði 2025

Þann 21. janúar var tilkynnt um úthlutun úr Sviðslistasjóði árið 2025. Úthlutað var 98 milljónum króna til 12 atvinnusviðslistahópa og að auki 102 mánuðum úr launasjóði sviðslistafólks. 

Í ár hlaut Handbendi brúðuleikhús í Húnaþingi vestra hæsta styrkinn sem veittur var, samtals að upphæð 24.000.000 króna. Þar af 10.560.000 úr Sviðslistasjóði og 24 mánuði úr launasjóði sviðslistafólks. 

Húnaþing vestra óskar aðstandendum Handbendis brúðuleikhúss innilega til hamingju með styrkinn.

Nánar má lesa hér um úthlutunina

Heimasíða Handbendis brúðuleikhúss

Var efnið á síðunni hjálplegt?