Heimafólk og ferðamannaleiðir

Heimafólk og ferðamannaleiðir

Rannsóknamiðstöð ferðamála í samvinnu við Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) vinna nú að könnun á aðkomu og sýn heimafólks á nýjum ferðamannaleiðum utan alfaraleiða. Könnunin er unnin með styrk úr Byggðarannsóknasjóði og beinist að völdum svæðum Norðurstrandarleiðar - The Arctic Coast Way, Melrakkasléttu og Vatnsnesi.

Könnuninni er beint að heimafólki á þessum tveimur svæðum, þá jafnt þeim sem hafa þar fasta búsetu allt árið, sem og land- og húseigendum ásamt þeim sem dvelja á svæðunum hluta árs. Könnunin er gerð sumar og haust 2024.

Við hvetjum þau sem falla undir framangreinda lýsingu til að taka þátt í könnuninni og segja þannig frá sinni upplifun.

Spurningar og svarmöguleikar eru settir upp á íslensku og ensku. Ef könnunin opnast í ensku viðmóti er einfalt að stilla yfir á íslensku í ramma efst í skjalinu. 

Könnunin er aðgengileg hér.

Survey on residents’ inclusion in the development of new tourist routes off the beaten track. The survey focuses on selected areas on the Arctic Coast Way, Melrakkaslétta and Vatnsnes.

The survey is aimed at locals in these two areas, that is those with permanent, year-round residency in one of the two areas, land- and house owners and those who annually stay in one of the two areas.

All questions and answers are provided in English and Icelandic. In case the survey opens in Icelandic, it can easily be turned to English in the drop-down window in the header.

Survey.

Var efnið á síðunni hjálplegt?