Höfðingleg gjöf til Velferðarsjóðs

Höfðingleg gjöf til Velferðarsjóðs

Ólöf Ólafsdóttir á Tannstaðabakka kom á fund stjórnar Velferðarsjóðs Húnaþings vestra mánudaginn 12. desember sl. og færði sjóðnum að gjöf kr. 650.000.

Ólöf hefur unnið að gerð bútasaumsteppa undanfarin ár og hafa þau verið afar vinsæl bæði innan og utan héraðs.

Styrktarfjárhæð Ólafar til Velferðarsjóðsins er líkt og undanfarin fimm ár afrakstur sölu umliðins árs og hefur Ólöf styrkt sjóðinn mjög myndarlega síðastliðin ár eða kr. 3.350.000 á sex árum.

Stjórn Velferðarsjóðs er bæði hrærð og glöð yfir þessu göfuga framtaki Ólafar og þakklát fyrir þann fallega hug sem býr að baki.

Á mynd f.v.: Sigurður Þór Ágústsson, Magnús Magnússon, Ólöf Ólafsdóttir, Elísa Ýr Sverrisdóttir.

Var efnið á síðunni hjálplegt?