Höfðinglegur styrkur Gæranna á árinu

Fulltrúar Gæranna,  Gréta og Árborg, Færa Birgi slökkviliðsmanni, Þorsteini varaslökkviliðsstjóra og…
Fulltrúar Gæranna, Gréta og Árborg, Færa Birgi slökkviliðsmanni, Þorsteini varaslökkviliðsstjóra og Val Frey slökkviliðsstjóra styrkinn.

Nytjamarkaðurinn á Hvammstanga er mörgum af góðu kunnur. Hann er rekinn af Gærunum, vöskum hópi kvenna sem hafa lagt áherslu á að gefa aftur út í samfélagið til hinna ýmsu framfaramála þann ágóða sem er af rekstri markaðarins. Slagorð þeirra er „Eins rusl er annars gull“. Eru það orð að sönnu því á árinu sem er að líða gáfu þær líkt og fyrri ár gjafir til stofnana sveitarfélagsins af miklum rausnarskap.

Færðu þær slökkviliðinu styrk til búnaðarkaupa sem nýttur var til endurnýjunar á hlífðarfatnaði til nota á vettvangi. Einnig nutu Tónlistarskóli Húnaþings vestra, Leikskólinn Ásgarður og Grunnskóli Húnaþings góðs af gjafmildi gæranna við kaup á bókum, kennslubúnaði og leikföngum. Að síðustu keyptu Gærurnar kaldan pott sem settur verður upp við sundlaugina.

Sveitarfélagið færir Gærunum hjartans þakkir fyrir þeirra mikilvæga framlag til eflingar samfélagsins í gegnum árin og þeirra óeigingjörnu störf.  Framlag þeirra er ómetanlegur stuðningur.

Var efnið á síðunni hjálplegt?