Hreyfileikur fyrir alla fjölskylduna

hreyfivikamynd.png

Nú er tækifærið fyrir alla fjölskylduna að hreyfa sig saman með því að taka þátt í skemmtilegum fjölskylduleik í hreyfivikunni.

 Það sem þið gerið er eftirfarandi:

Takið þátt í neðangreindum viðburðum, takið myndir af ykkur í hverjum viðburði fyrir sig og póstið á instagram eða facebook með myllumerkinu #hreyfileikurhvt. Myndirnar þurfa að birtast í hreyfivikunni. Athugið að instagram reikningingur þarf að vera opinn svo að myndirnar sjáist.

 Vinningar:

 1. Árskort í Íþróttamiðstöð fyrir fjölskylduna

 2. Út að borða á Sjávarborg  fyrir fjölskylduna

 3. Árskort fyrir fjölskylduna í sund

 

 Fjölskyldan þarf að taka þátt í eftirfarandi (og mynda):

 1. Fjölskyldan í sundi í sundlauginni Hvammstanga

 2. Fjölskyldan í fjöruferð fyrir neðan Höfða

3. Fjölskyldan í Merkurhringnum  (göngu- eða hjólreiðatúr)

4. Fjölskyldan í körfubolta á körfuboltavellinum við grunnskólann

 5. Fjölskyldan í fótbolta á sparkvellinum við skólann

 6. Fjölskyldan í golfi (á púttvellinum við Heilsugæslustöðina)

 7. Fjölskyldan upp á vatnstanknum

 8. Fjölskyldan að taka þátt í einhverjum skipulögðum hreyfiviðburði sem boðið er upp á í Hreyfivikunni.

Var efnið á síðunni hjálplegt?