Húsaleigubætur 2015

Sækja þarf um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og því þurfa allir sem telja sig eiga rétt á húsaleigubótum að sækja um húsaleigubætur fyrir 2015.

Umsóknareyðublað er hægt að finna hér http://www.hunathing.is/stjornsysla/eydublod/

eða í Ráðhúsinu að Hvammstangabraut 5.  Til að fá greiddar bætur fyrir janúarmánuð þarf umsókn að berast ekki síðar en 16. janúar 2015, en bætur verða ekki greiddar fyrr en öll nauðsynleg gögn hafa borist.  Ekki er þó nauðsynlegt að senda inn gögn sem þegar eru til staðar eins og t.d. leigusamning og skattframtal 2014.

Fylgigögn: þinglýstur leigusamningur, staðfest skattframtal 2014 og launaseðlar þriggja síðustu mánaða þeirra sem lögheimili/búsetu eiga í íbúðinni, staðfesting frá skóla.

Nánari upplýsingar veitir Henrike Wappler, umsjónarfélagsráðgjafi, í síma 455 2400 eða netfang henrike@hunathing.is

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?