Jafnréttisáætlun Húnaþings vestra 2016-2020

Jafnréttisáætlun Húnaþings vestra 2016-2020.

Inngangur
Jafnréttisáætlun sveitarfélagsins byggir á lögum nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
Jafnréttisnefnd/félagsmálaráð skal hafa umsjón með gerð jafnréttisáætlana til fjögurra ára í senn. Jafnrétti er sameiginlegt réttlætismál beggja kynja með velferð þeirra að leiðarljósi.


Markmið
Allir einstaklingar skulu eiga jafna möguleika á að njóta eigin atorku og þroska hæfileika sína óháð kynferði.
Allir einstaklingar skulu njóta grundvallar mannréttinda án tillits til kynferðis, kynþáttar, kynhneigðar, trúarbragða, fötlunar, sjúkdóma eða annarrar stöðu.
Áhersla er lögð á frumkvæði sveitarfélagsins í jafnréttismálum.

Nefndir og ráð
Í nefndum, ráðum og stjórnun sveitarfélagsins skulu sitja sem næst jafnmargar konur og karlar. Skal ávallt á það minnt þegar óskað er tilnefningar í hlutaðeigandi nefndir, ráð og stjórnir. Því jafnari sem hlutföll kvenna og karla eru við stefnumótun, því meiri líkur eru á að ákvarðanir sem teknar eru endurspegli hagsmuni beggja kynja. Þetta á einnig við um þar sem unnið er að pólitískum markmiðum.

Ráðningar
Við ráðningar skal í öllu fylgja jafnréttislögum. Fastar stöður hjá stofnunum sveitarfélagsins skulu ávallt auglýstar lausar til umsóknar.
Koma skal fram í auglýsingu hvatning þess efnis að konur jafnt sem karlar sæki um störfin. Vinna skal að því að jafna frekar kjör karla og kvenna í sveitarfélaginu og að þau njóti sömu kjara og réttinda fyrir sambærileg störf.
Áhersla skal lögð á að fréttaflutningur og umfjöllun á vefsíðu sveitarfélagsins taki mið af jafnréttissjónarmiðum.

Stuðningur við fjölskyldur                           
Mikilvægt er að hvetja báða foreldra til þess að nýta fæðingarorlof. Öllum börnum frá 12 mánaða aldri skal standa til boða leikskólapláss eða dagvistunarúrræði þar til lögbundin skólaganga hefst. Mikilvægt er að starfsmenn njóti sveigjanleika vegna samræmingar starfs- og fjölskylduábyrgðar. Tekið skal tillit til starfsmanna sem þurfa að taka á sig                                                             aukna fjölskylduábyrgð vegna óviðráðanlegra eða brýnna fjölskylduaðstæðna. Tryggja skal nægilega þjónustu við aldraða og öryrkja í sveitarfélaginu, þeir hafi kost á að búa á heimili sínu eins lengi og unnt er.

Kynbundið ofbeldi
Kynbundin og kynferðisleg áreitni er ekki liðin á vinnustöðum sveitarfélagsins. Þolandi skal engan skaða bera á ráðstöfunum sem gripið
er til í slíkum tilvikum. Stjórnendur skulu ráðfæra sig við fagfólk vegna þessa.

Jafnréttisfræðsla
Vinna skal markvisst að jafnréttismálum í sveitarfélaginu og stuðla að fræðslu um þau. Tryggja skal starfsfólki t.d. í skólum, íþróttamiðstöð, félagsmiðstöð og annars staðar þar sem fram fer starf með börnum og unglingum, fræðslu til að gera það meðvitaðra og hæfara til að vinna að jafnari stöðu kynjanna. Í skólastarfi skal lögð áhersla á að búa bæði kynin undir ábyrgð og skyldur fjölskyldu- og atvinnulífsins, m.a. með fræðslu um jafnréttismál. Í skólastarfi skal einnig gætt að þörfum og áhugasviðum stúlkna og drengja sé gert jafn hátt undir höfði.

Jafnréttisráðgjöf
Jafnréttisnefnd skal vera leiðbeinandi í jafnréttismálum fyrir starfsmenn og stjórnendur í sveitarfélaginu. Ef einstaklingur eða hópur telur sér mismunað með tilliti til kynferðis skal jafnréttisnefnd veita viðkomandi aðstoð við að leita réttar síns. Þetta á m.a. við um kærur til Kærunefndar jafnréttismála.

Kynning
Jafnréttisáætlun Húnaþings vestra skal send stjórnendum sveitarfélagsins og vera aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.hunathing.is.


Framkvæmdaáætlun 2016 – 2020.
1. Bréf skal sent til stjórnmálaflokka/framboða og athygli vakin á jafnréttissjónarmiðum við val á fulltrúum til starfa í nefndum, ráðum
og stjórnum.
- Umsjón skal vera í höndum jafnréttisnefndar/félagsmálaráðs fyrir næstu kosningar.


2. Hlutfall kynja í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins skal kannað á fjögurra ára fresti.
- Umsjón er í höndum jafnréttisnefndar/félagsmálaráðs eigi síðar en ári eftir kosningar og skal niðurstaða kynnt í fundargerð nefndarinnar.


3. Unnið skal að fræðslu um jafnréttismál, kynbundið ofbeldi/áreitni og/eða kynferðislegt ofbeldi/áreitni.
- Umsjón er í höndum jafnréttisnefndar/félagsmálaráðs og skal árlega eitt ákveðið mál tekið fyrir.


4. Samanburður á heildarkjörum karla og kvenna sem starfa hjá sveitarfélaginu skal gerður á þriggja ára fresti, árið 2016 og 2019.
- Umsjón er í höndum byggðaráðs sem skilar niðurstöðu samanburðarins til jafnréttisnefndar/félagsmálaráðs fyrir árslok 2016 og 2019.

5. Starfsauglýsingar frá sveitarfélaginu skulu settar fram með jafnréttissjónarmið í huga, meðal annars að hvetja bæði kynin til að sækja um.
- Umsjón er í höndum sveitarstjóra og stjórnenda sveitarfélagsins við birtingu auglýsinga. Einnig er bent á 3. mgr. 26. gr. laga nr.
10/2008.


Samþykkt á 168. fundi félagsmálaráðs/jafnréttisnefndar þann 11.2.2016.

Var efnið á síðunni hjálplegt?