Lagning ljósleiðara á Laugarbakka

Mynd: Chaitawat/Pixabay
Mynd: Chaitawat/Pixabay

Míla í samstarfi við Húnaþing vestra leggur ljósleiðara á Laugarbakka sumarið 2025. Framkvæmdaáformin eru auglýst á heimasíðu Mílu. Framkvæmdin er styrkt með átaki stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Húnaþing vestra var eitt þeirra sveitarfélaga sem fékk styrk til framkvæmda.

Áformað er að framkvæmdir fari fram sumarið 2025 á tímabilinu júní til september. Nánari upplýsingar um tímasetningar veitir Míla.

Óski fyrirtæki eftir samstarfi í framkvæmdinni skal beina slíkri fyrirspurn til Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is við fyrsta tækifæri og a.m.k. innan 30 daga frá birtingu tilkynningar þessar svo hægt sé að tryggja að hönnun verkefnis geri ráð fyrir samnýtingu lagnaleiða innan framkvæmdartímans.

Var efnið á síðunni hjálplegt?