Við Grunnskóla Húnaþings vestra eru lausar stöður kennara, stuðningsfulltrúa og í matsal. Um er að ræða 60 – 80% störf.
- Umsjónarkennari á unglingastigi
- Myndmenntakennari
- Tímabundin staða umsjónarkennara á miðstigi
- Tímabundin staða sérkennara
- Tímabundnar stöður stuðningsfulltrúa
- Tímabundin staða skólaliða
- Tímabundin staða starfsmanns í matsal
Eldri umsóknir um störf stuðningsfulltrúa, skólaliða og í matsal óskast endurnýjaðar.
Við leitum að einstaklingum með:
- Tilskilda menntun.
- Áhuga á að starfa með börnum
- Lipurð í mannlegum samskiptum
- Skipulagshæfileika
- Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi
Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störfin. Upplýsingar um skólastarfið má finna á www.grunnskoli.hunathing.is
Umsóknafrestur er til 12. júní 2019. Umsókn ásamt ferilskrá og meðmælendum skal berast rafrænt á grunnskoli@hunathing.is.
Umsækjendur skili undirrituðu eyðublaði um heimild til öflunar upplýsinga úr sakaskrá með umsókn sinni. Eyðublaðið má nálgast á heimasíðu skólans undir flipanum EYÐUBLÖÐ.
Frekari upplýsingar veitir Sigurður Þór Ágústsson skólastjóri grunnskóla í síma 455-2900 / 862-5466.