Við leikskólann Ásgarð eru tvær tímabundnar stöður leikskólakennara/leiðbeinenda lausar:
100% staða til 30. apríl 2023
100% staða til 4. júlí 2023
Báðar með möguleika á framtíðarstarfi.
Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingum með góða íslenskukunnáttu, áhuga á að vinna með börnum og góða hæfni í mannlegum samskiptum.
- Leyfisbréf, háskólamenntun og/eða aðra menntun
- Áhuga á að starfa með börnum
- Lipurð í mannlegum samskiptum
- Fagmennska
- Skipulagshæfileika
- Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi
- Gleði og jákvæðni
Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru öll kyn hvött til að sækja um störfin.
Upplýsingar um leikskólastarfið má finna á http://asgardur.leikskolinn.is/
Hugmyndafræði skólans byggir á kenningum Mihaly Csikszentmihalyi, flæði.
Umsóknafrestur er til 23. september næstkomandi og og mun viðkomandi hefja störf 1. október. Umsókn ásamt ferilskrá og meðmælendum skulu berast í leikskólann Ásgarð Garðavegi 7, 530 Hvt. eða rafrænt á leikskoli@hunathing.is
Frekari upplýsingar veitir Kristinn Arnar Benjamínsson, 451-2343 eða 845-1122
Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því í auglýsingu að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.