Laust starf húsvarðar við Félagsheimilið Hvammstanga

Laust starf húsvarðar við Félagsheimilið Hvammstanga

Húnaþing vestra óskar eftir að ráða umsjónarmann/húsvörð við Félagsheimilið Hvammstanga, í tímabundið starf frá 1. september 2024 – 31. ágúst 2025. Starfshlutfallið er 25%.

Helstu verkefni eru umsjón með útleigu, samskipti við leigutaka, þrif og minniháttar viðhald.

Umsjónarmaður/húsvörður þarf að búa yfir færni í mannlegum samskiptum, sjálfstæði í vinnubrögðum og sýna frumkvæði og metnað í störfum sínum.

Umsóknarfrestur er til og með 25. júlí nk. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. september nk.

Umsóknir skulu berast á netfangið skrifstofa@hunathing.is.

Frekari upplýsingar gefur sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Elín Jóna Rósinberg, á netfanginu ellajona@hunathing.is eða í síma 455 2400.

Var efnið á síðunni hjálplegt?