Lausar stöður í leikskólanum Ásgarði
Leikskólakennarar/leiðbeinendur
Við leikskólann Ásgarð eru laust tímabundið 100% stöðugildi til 16. júní 2025.
Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi með góða íslenskukunnáttu, áhuga á að vinna með börnum og góða hæfni í mannlegum samskiptum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf, háskólamenntun og/eða aðra menntun sem nýtist í starfi
- Góð íslenskukunnátta
- Áhugi á að starfa með börnum
- Fagmennska og lausnamiðuð hugsun
- Skipulagshæfileikar
- Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi
- Lipurð í mannlegum samskiptum
- Gleði og jákvæðni
Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um leikskólastarfið má finna á http://asgardur.leikskolinn.is/
Hugmyndafræði skólans byggir á vali og hópastarfi. Uppeldisstefna Húnaþings vestra er Jákvæður agi.
Umsóknafrestur er til 3. desember næstkomandi og mun viðkomandi hefja störf 2. janúar 2025. Umsókn ásamt ferilskrá og meðmælendum skulu berast í leikskólann Ásgarð, Garðavegi 7, 530 Hvt. eða rafrænt á leikskoli@hunathing.is
Frekari upplýsingar veitir Kristinn Arnar Benjamínsson, 451-2343 eða 845-1122
Eldri umsóknir verða teknar til greina í umsóknarferlinu
Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því í auglýsingu að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.