Fjölskyldusvið Húnaþings vestra heldur utan um, félags- og fræðslu þjónustu sveitarfélagsins ásamt því að sinna barnavernd.
Undanfarið hefur verið mikið rætt í þjóðfélaginu um svokallaða skólaforðun ungmenna og er þar átt við að börn á unglingastigi forðist að mæta í skólann. Okkar samfélag hefur ekki verið undantekning á þessu vandamáli og höfum við séð það sl. vetur að skólaforðun er hér við skólann.
Samþykkt hefur verið að ráða inn starfsmann til reynslu í eitt ár á fjölskyldusvið til að sinna betur þessu verkefni ásamt öðrum verkefnum á sviðinu.
Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir, kennari hefur verið ráðin í starfið frá og með 15. ágúst. Hún kláraði kennararéttindin fyrir átta árum og starfaði áður sem stuðningsfulltrúi við Grunnskólann. Guðrún hefur verið umsjónakennari sl. ár bæði á unglinga og miðstigi og unnið að ýmsum málum innan skólans eins og agamálum og fleira. Við bjóðum Guðrúnu Ósk velkomna til starfa.
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs.