Samfélagsviðurkenningar Húnaþings vestra

Samfélagsviðurkenningar Húnaþings vestra

Fyrr í haust kallaði fjölskyldusvið Húnaþings vestra eftir tilnefningum frá íbúum sveitarfélagsins um þá aðila sem þeir telja eiga skilið virðingarvott fyrir verk sín eða störf í þágu samfélags okkar.  Viðurkenningarnar eru veittar annað hvert ár og er er þetta í þriðja sinn sem það er gert. Fjölskyldusviði bárust margar góðar tilnefningar og var úr vöndu að velja.

Í dag voru samfélagsviðurkenningar Húnaþings vestra var afhentar á fundi félagsmálaráðs. Eftirtaldir aðilar fengu viðurkenningu að þessu sinni.

Elínborg Sigurgeirsdóttir:

Elínborg hefur lagt mikið af mörkum í þágu tónlistar í Húnaþingi vestra. Hún hefur um áratugaskeið starfað  sem skólastjóri, kennari, undirleikari, meðlimur í hljómsveitum og nánast öllu sem kemur að útbreiðslu tónlistar og sönglistar sem er með miklum blóma í sveitarfélaginu.

Þuríður Þorleifsdóttir:

Þuríður hefur með einstakri elju og dugnaði unnið að endurbótum á Verslunarminjasafninu og Gallerí Bardúsu. Óhemju mikil sjálfboðavinna liggur að baki þeim árangri sem þar hefur náðst sem hefur vakið eftirtekt heimafólks og gesta Húnaþings vestra.  

Leikflokkur Húnaþings vestra:

Leikflokkurinn hefur vakið athygli fyrir öflugt starf og metnaðarfull verkefni. Fyrr á árinu var sýning leikflokksins á Hárinu valin sem áhugaverðasta áhugamannasýning ársins á landinu.  Leikflokkurinn er fyrirmyndar félagsskapur og hvetjandi fyrir samfélagið og hefur lagt sitt af mörkum við að kynna samfélagið út á við.  

 

Að lokinni afhendingu var boðið upp á dýrindis köku sem Daðey Arna Þorsteinsdóttir 13 ára bakaði af þessu tilefni.

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?