AUGLÝSING
Skipulagslýsing fyrir Flatnefsstaði, Vatnsnesi, Húnaþingi vestra
Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti þann 14. júní 2018 að leita umsagnar á skipulagslýsingu fyrir deiliskipulag í landi Flatnefsstaða í Húnaþingi vestra skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagssvæðið nær yfir hluta jarðarinnar Flatnefsstaðir (landnúmer 144531) á vestanverðu Vatnsnesi í Húnaþingi vestra. Skipulagssvæðið afmarkast nokkuð vestan við vegslóða sem liggur í gegnum land Flatnefsstaða af Vatnsnesvegi og liggur niður að sjó. Jörðin Flatnefsstaðir og þar með skipulagssvæðið liggur að landamerkjum jarðanna Saurbær í austri og Tjörn í vestri. Svæðið neðan Vatnsnesvegar einkennist af mólendi og klapparholtum en við ströndina eru brattir klettar í sjó fram ásamt nokkrum smávíkum. Skipulagssvæðið er um 90 ha að flatarmáli.
Markmið með fyrirhuguðu deiliskipulagi er uppbygging nýs sela- og náttúruskoðunarstaðar á Vatnsnesi til að dreifa álagi ferðaþjónustu á náttúruna.
Skipulagslýsingin sem er sett fram í greinargerð verður til sýnis í Ráðhúsi Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga og á heimasíðu sveitarfélagsins www. hunathing.is frá 19. júní – 10. júlí 2018
Íbúum og hagsmunaaðilum er gefinn kostur á því að leggja fram sjónarmið og ábendingar við skipulagslýsinguna og skal þeim skilað skriflega á skrifstofu Húnaþings vestra Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga eða á netfangið skrifstofa@hunathing.is fyrir 10. júlí 2018.
Skipulagslýsinguna má sjá HÉR