Erum við að leita að þér?
Brunavarnir Húnaþings vestra óska eftir öflugum einstaklingum til starfa óháð kyni. Um er að ræða störf slökkviliðs sem felast í að sinna útköllum, æfingum og öðrum verkefnum eftir þörfum. Vilt þú læra nýja hluti, vera hluti af skemmtilegum hópi fólks, fara kannski aðeins út fyrir þægindarammann og takast á við krefjandi verkefni? Þá gæti þetta verið eitthvað fyrir þig. Um hlutastarfandi slökkvilið er að ræða.
Menntunar- og/eða hæfniskröfur:
- Æskilegt er að umsækjendur uppfylli hæfniskröfur 13. gr. reglugerðar um starfsemi slökkviliða nr. 747/2018.
- Hafi góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigð, reglusöm og háttvís, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldin lofthræðslu eða innilokunarkennd.
- Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun og reynslu. (Í undantekningartilvikum má víkja frá skilyrðum 2. tölul. 1. mgr. hjá slökkviliðum sem falla undir c-lið 1. mgr. 15. gr. reynist ekki unnt að fá fólk til starfa sem uppfylla skilyrði um iðnmenntun eða sambærilegt).
Að auki er æskilegt að starfandi slökkviliðsmenn uppfylli eftirtalin skilyrði:
- Aukin ökuréttindi C til að stjórna vörubifreið.
- Standast læknisskoðun og þrekpróf.
- Hafa jákvætt hugarfar og færni í mannlegum samskiptum.
- Menntun og/eða reynsla af starfi slökkviliðs- og/eða sjúkraflutningamanna er kostur.
- Vilji til að afla sér viðeigandi menntunar slökkviliðsmanna.
Fylgiskjöl með umsókn:
Prófskírteini, sakavottorð, ljósrit af ökuskírteini og ferilsskrá.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á netfangið valurfr@hunathing.is.
Nánari upplýsingar gefur Valur Freyr Halldórsson, slökkviliðsstjóri, í síma 899-4245.
Umsóknarfrestur er til 15.mars 2025.