Söfnun á rúlluplasti 6.-8. nóvember nk.

Söfnun á rúlluplasti 6.-8. nóvember nk.

Söfnun á rúlluplasti mun fara fram í sveitarfélaginu frá miðvikudeginum 6. nóvember til föstudagsins 8. nóvember nk.

Þeir sem óska eftir þjónustunni,  tilkynna það til skrifstofu Húnaþings vestra í síma: 455-2400 eða á netfangið skrifstofa@hunathing.is
fyrir lok dags þriðudaginn 5. nóvember.


Þar þarf að koma fram heimilisfang viðkomandi bæjar, nafn og símanúmer eiganda.

Mikilvægt er að plastið sé hreint og laust við aðskotahluti svo efnið sé hæft til endurvinnslu.

Frekari upplýsingar um flokkun á bændaplasti má finna hér

Var efnið á síðunni hjálplegt?