Störf við Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra

Störf við Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra

Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra auglýsir lausar stöður til umsóknar.

Um er að ræða:

Tvær 60-80 % stöður í tímabundin störf til að byrja 15. september 2024

Eina 30-35 % stöðu til að vinna um helgar og tilfallandi afleysingar.

Leitað er að einstaklingum sem hafa:

  • ríka þjónustulund,
  • góða hæfni í mannlegum samskiptum,
  • reynslu af sambærilegum störfum,
  • þekkingu á skyndihjálp og getu til að standast kröfur sem gerðar eru til sundlaugarvarða.

Lýsing á starfinu:

Starfið felur í sér viðveru samkvæmt vaktavinnuplani. Í starfinu felst meðal annars öryggisgæsla á útisvæði og í búningsklefum, þrif á öllum vistaverum sundlaugar og íþróttamiðstöðvar, uppgjör, þjónusta við gesti íþróttamiðstöðvar og eftirlit með öryggiskerfum.

Umsækjendur skulu vera orðnir 18 ára og æskilegt er að viðkomandi standist stöðupróf í sundi.

Vinnutími: Vaktavinna

Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningum launanefndar sveitarfélaga og Stéttarfélagsins Samstöðu.

Umsóknir ásamt ferilskrá og umsagnaraðila sendist á netfangið tanja@hunathing.is. Nánari upplýsingar veittar í sama netfangi.

Umsóknarfrestur er til 30. ágúst 2024

Íþrótta- og tómstundafulltrúi.

Var efnið á síðunni hjálplegt?