Sumarstarfsfólk óskast til starfa í íþróttamiðstöð Húnaþing vestra sumarið 2023.
Tímabil: Byrjun júlí til loka ágúst.
Lýsing á starfinu: Starfið felur í sér allan daglegan rekstur, s.s. öryggisgæslu á útisvæði og búningsklefum, þrif á öllum vistaverum sundlaugar og íþróttamiðstöðvar, uppgjör, þjónustu við gesti íþróttamiðstöðvar og eftirlit með öryggiskerfum.
Kröfur v/starfs: Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, hafa ríka þjónustulund og samstarfsvilja. Umsækjendur þurfa að standast hæfnispróf sundstaða skv. reglum um öryggi á sundstöðum og eiga auðvelt með að taka ákvarðanir og geta brugðist skjótt við ef slys ber að höndum. Reynsla er kostur.
Vinnutími: Vaktavinna
Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningum launarnefndar sveitarfélaga og Stéttarfélagsins Samstöðu.
Yfirmaður: Tanja Ennigarð íþrótta- og tómstundafulltrúi
Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn, ásamt ferilskrá á netfangið : tanja@hunathing.is eða skila umsókn á skrifstofu Húnaþing vestra.
Eldri umsóknir eru gildar og þeir sem hafa sent inn umsókn fá staðfestingu þar um í tölvupósti.
Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl 2023