Sumarstarfsfólk óskast til starfa í íþróttamiðstöð Húnaþings vestra sumarið 2021.
Tímabil: Byrjun júní til loka ágúst.
Lýsing á starfinu: Starfið felur í sér allan daglegan rekstur, s.s. öryggisgæslu á útisvæði og búningsklefum, þrif á öllum vistaverum sundlaugar og íþróttamiðstöðvar, uppgjör, þjónustu við gesti íþróttamiðstöðvar og eftirlit með öryggiskerfum.
Kröfur v/starfs: Viðkomandi þurfa að hafa náð 18 ára aldri, hafa ríka þjónustulund og samstarfsvilja. Æskilegt er að viðkomandi hafi farið á viðurkennt skyndihjálparnámskeið og hafi tekið sundlaugarvarðapróf. Reynsla er kostur.
Vinnutími: Vaktavinna
Launarkjör: Laun eru samkvæmt kjarasamninga launarnefndar sveitafélaga og Stéttarfélagsins Samstöðu.
Yfirmaður: Tanja Ennigarð íþrótta- og tómstundafulltrúi
Áhugasamir vinsamlegast sendi umsókn, ásamt ferilskrá á netfangið : tanja@hunathing.is eða skili umsókninni á skrifstofu Húnaþings vestra.