Þann 8. desember nk. fær Leikskólinn Ásgarður afhentan sinn þriðja grænfána. Fyrsta fánann fékk leikskólinn árið 2011 og fána tvö 2016.
Grænfánaverkefnið er á vegum Landverndar, þar sem skólar á öllum skólastigum geta tekið þátt í verkefninu. Áherslan er á menntun til sjálfbærni, umhverfismennt og á almennt umhverfisstarf þar sem starfið á að vera sem sýnilegast útí nærsamfélagið. Grænfáninn sjálfur er síðan viðurkenning til skóla fyrir vel unnið verk.
Þemu Ásgarðs fyrir fána þrjú voru lífsbreytileiki annarsvegar og loftlagsbreytingar og samgöngur hins vegar. Markmið fyrir lífsbreytileika voru að bjóða dýr velkomin á skólalóðina, að huga að ræktun bæði inni og úti og fræðast um ólík dýr og heimkynni þeirra. Markmið fyrir loftslagsbreytingar og samgöngur voru að kynna hugtakið loftslagsbreytingar, sem er ansi þungt hugtak fyrir unga krakka, en hægt var að tengja hugtakið við mengun og dýr og heimkynni þeirra, hvað gerist ef ísinn hjá ísbirninum bráðanr? Og að lokum var að kynna vistvænan ferðamáta, hvetja börn sem það geta að velja grænni ferðamáta, minna foreldra á að hafa bílinn ekki í lausagangi o.fl.
Þessu unnum við að ásamt öðru sem orðið er fastur liður í skólastarfinu, borða hollan mat, forðast matarsóun, stuðla að hreyfingu og fleira til. Umhverfisstjóri Húnaþings vestra Ína Björk Ársælsdóttir mun afhenda fánann kl 15:15 á skólalóð.
Umhverfissáttmáli Ásgarðs: Leikskólinn Ásgarður hefur tekið þá stefnu að vinna markvisst að því að nemendur, starfsfólk og skólasamfélagið í heild tileinki sér þá hugsun að vera ábyrgur gagnvart umhverfi og náttúru.